Innlent

Utanríkisráðherra fjarverandi í fyrirspurnatíma: „Ráðherrar kannski komnir í andlegt sumarfrí“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna. vísir/vilhelm/daníel
Þingmenn stjórnarandstöðunnar kvöddu sér hljóðs við upphaf þingfundar í morgun og ræddu fundarstjórn forseta.

Fyrsta mál á dagskrá voru óundirbúnar fyrirspurnir til forsætisráðherra, utanríkisráðherra og félags-og húsnæðismálaráðherra en utanríkisráðherra forfallaðist á seinustu stundu. Þetta voru þingmenn stjórnarandstöðunnar ósáttir við.

Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sagði ríkisstjórnina líta svo á að þingið væri ekki í fyrsta sæti. Flokkssystir hennar, Katrín Jakobsdóttir, hafði þetta um málið að segja:

„Ég tel einsýnt að ráðherrar eru orðnir lúnir eftir veturinn og kannski bara komnir í andlegt sumarfrí þegar einungis tveir þeirra treysta sér til að mæta hér í óundirbúnar fyrirspurnir. [...] Ég lýsi yfir ákveðnum áhyggjum af heilsufari ráðherra.“

Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, sagði þessi vinnubrögð ríkisstjórnarinnar óásættanleg og Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, sagði ráðherra ríkisstjórnarinnar sýna þinginu vanvirðu.

Einar K. Guðfinnsson, forseti þingsins, sagði við upphaf umræðunnar um fundarstjórn að honum hafi orðið ljóst fyrr en skömmu áður að einungis forsætisráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra yrðu viðstaddir fyrirspurnatímann. Þetta þætti honum óheppilegt en lítið hefði verið hægt að gera með svo skömmum fyrirvara.

Uppfært klukkan 12:20: Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu sem send var nú rétt fyrir hádegi kemur fram að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, hafi í gær og í dag fundað með nýrri ríkisstjórn Finnlands.

Hann hefur meðal annars fundað með utanríkisráðherranum Timo Soini, ráðherra utanríkisviðskipta og þróunarmála, Lenita Toivakka, formanni þingflokks Miðflokksins, Matti Vanhanen, formanni utanríkismalanefndar finnska þingsins, Antti Kaikkonen, og Antero Vartia, sem tók nýlega sæti á finnska þinginu fyrir Græningja en hann er af íslenskum ættum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×