Körfubolti

Einar Árni búinn að finna Kana fyrir veturinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vance Hall kemur úr Bellarmine háskólanum í Kentucky.
Vance Hall kemur úr Bellarmine háskólanum í Kentucky. mynd/heimasíða þórs
Þórsarar frá Þorlákshöfn eru búnir að finna sér Bandaríkjamann fyrir átökin í Domino's deild karla í körfubolta á næsta tímabili.

Sá heitir Vance Hall og 1,93 metra hár leikstjórnandi frá Kentucky í Bandaríkjunum.

Hall útskrifaðist frá Bellarmine háskólanum í Louisville í Kentucky á síðasta ári. Hann lék í tvö ár með liðinu í 2. deild háskólaboltans en þar áður lék hann með Wright State University í 1. deild.

Á lokaárinu sínu með Bellarmine var Hall með 14,7 stig, 4,6 fráköst og 4,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann var með 49,2% skotnýtingu, þar af 41,4% fyrir utan þriggja stiga línuna.

Samkvæmt heimasíðu Þórs er ekki ljóst hvenær Hall kemur til landsins en hann verður allavega með liðinu í Lengjubikarnum sem hefst 14. september.

Einar Árni Jóhannsson mun stýra Þór á næsta tímabili en hann tók við þjálfun liðsins í vor af Benedikt Guðmundssyni.

Þá er miðherjinn hávaxni Ragnar Nathanealsson kominn aftur til Þorlákshafnar eftir eins árs dvöl í atvinnumennsku í Svíþjóð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×