Í nýjasta tölublaði Glamour er að finna nokkrar blaðsíður tileinkaðar útsölum en ritstjórnin gefur nokkur heilræði sem hafa ber bak við eyrað til að gera góð útsölukaup.
1. Lykillinn að góðum útsölukaupum er að vera undirbúin, vera til dæmis nýbúin að taka vor/sumarhreingerninguna í fataskápnum og hafa góða yfirsýn yfir það sem virkilega má bæta í hann.
2.Leitaðu að einföldum hlutum sem alltaf má bæta í fataskápinn, eins og stuttermabolum, gallabuxum í góðu sniði, hnepptum peysum, jakkafatajökkum og svo framvegis.
3.Ekki láta verðlækkunina blinda þig. Hugsaðu líka um hvort flíkin passi inn í fataskápinn. Geturðu notað hana við fleira en eitt tilefni?
4.Það er oft gott að leita uppi hluti sem vanalega eru á hærra verði, eins og yfirhafnir, skó og fína kjóla sem lækka þá meira fyrir vikið.
5.Skoðaðu trendin sem verða næsta vetur. Hvaða munstur tröllriðu tískupöllunum, hvaða snið, hvernig fylgihlutir og svo framvegis. Glamour spáir því að innblásturinn frá áttunda áratugnum eigi eftir að verða ennþá sterkari næsta vetur með sínum útvíðu buxum, támjóu skóm og blússum með víðum ermum.




Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér.
Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.
Júlíblaðið er stútfullt af fjölbreyttu efni - hér fáið þið smá sýnishorn. Ekki missa af okkur - komið í allar helstu verslanir og með veglegri gjöf. #glamouriceland
A video posted by Glamour Iceland (@glamouriceland) on Jul 13, 2015 at 4:28am PDT