Körfubolti

Craion tekur slaginn með KR í vetur

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Craion reyndist liðinu dýrmætur undir körfunni á síðasta ári.
Craion reyndist liðinu dýrmætur undir körfunni á síðasta ári. Vísir/Ernir
Staðfest var í gærkvöldi að Michael Craion muni taka slaginn með KR-liðinu í vetur en þetta kemur fram á Facebook síðu körfuknattleiksdeildar KR.

KR-ingar hafa titil að verja en félagið hefur orðið Íslandsmeistari undanfarin tvö ár, nú síðast eftir skemmtilega rimmu við Tindastól í úrslitum í vor en þar áður eftir sigur á Grindavík.

Þetta verður því fjórða tímabil Craion á Íslandi en þessi stóri og stæðilegi framherji lék áður fyrr í tvö ár með Keflavík áður en hann gekk til liðs við KR síðasta sumar.

Orðrómar voru á lofti um að Tindastóll hefði boðið Craion samning en hann hefur ákveðið að taka slaginn með Íslandsmeisturunum í von um að verja Íslandsmeistartitilinn annað árið í röð, fyrst allra liða frá því að Keflavík vann þrjú ár í röð 2002-2005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×