Golf

Jason Day eykur forystuna á Conway Farms

Á einhver séns í Jason Day á lokahringnum?
Á einhver séns í Jason Day á lokahringnum? Getty
Jason Day var ekki í jafn miklu stuði á þriðja hring á BMW meistaramótinu og hann var í fyrstu tvo hringina en hann lék hringinn í dag á 69 höggum eða tveimur undir pari.

Það dugði þó til þess að auka forystu hans í sex högg en hann hefur leikið fyrstu þrjá hringina á Conway Farms vellinum á samtals á 20 höggum undir pari.

Daniel Berger og Scott Piercy deila öðru sætinu á 14 höggum undir pari en Rory McIlroy er einn í fjórða sæti á 13 höggum undir pari.

Tilþrif dagsins átti Suður-Kóreumaðurinn Sang Moon Bae en hann setti niður ótrúlegt 35 metra pútt fyrir erni á 14. holu.

Það verður áhugavert að sjá hvort að Day nái að sigra í sínu fjórða móti af síðustu sex sem hann hefur tekið þátt í á morgun en lokahringurinn verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 17:15.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×