Golf

Evrópa leiðir fyrir lokadaginn í Solheim bikarnum

Charley Hull og Suzann Pettersen hafa myndað gott lið.
Charley Hull og Suzann Pettersen hafa myndað gott lið. Getty
Þegar að tveimur keppnisdögum er lokið í Solheim bikarnum, sem er nokkurskonar Ryder-keppni bestu kvenkylfinga Evrópu og Bandaríkjanna, leiðir Evrópuliðið með átta stigum á móti fimm.

Það eru þó þrír leikir óleiknir þar sem ekki tókst að ljúka við keppni á öðrum degi vegna myrkurs og því á staðan eftir að breytast í fyrramálið áður en að lokaumferðin hefst þar sem 12 einmenningsleikir eru á dagskrá.

Mótið fer fram á hinum glæsilega St. Leon Rot velli í Þýskalandi en Evrópuliðið hefur sigrað í síðustu tveimur Solheim bikurum. Þar áður hafði bandaríska liðið sigrað þrisvar sinnum í röð.

Kylfingur mótsins hingað til hefur verið hin 19 ára Charley Hull frá Englandi en hún hefur sigrað alla þrjá leiki sína og er af mörgum talin efnilegasti kylfingur heims.

Bandaríska stórstjarnan Michelle Wie hefur þó tapað báðum sínum leikjum fyrir bandaríska liðið en allt stefnir í spennandi lokadag á morgun sem verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×