Glamour

Rauði dregill Marc Jacobs lokaði tískuvikunni í New York

Ritstjórn skrifar
Popp og kók í boði fyrir gestina.
Popp og kók í boði fyrir gestina. Glamour/Getty
Það má segja að sýning Marc Jacobs hafi heldur betur verið í rúsínan í pylsuendanum á tískuvikunni í New York í gærkvöldi.

Fatahönnuðurinn frægi rúllaði út rauða dreglinum og bauð á frumsýningu, með poppi og kóki og öllu tilheyrandi. Fyrirsæturnar byrjaðu á því að ganga rauða dreglinn og stilla sér upp fyrir ljósmyndara áður en þær gengu út í bíósalinn við undirspil stórsveitar á sviðinu. 

Þrátt fyrir að sýningin hafi verið mikið sjónarspil þá var fatalínan sjálf ekkert síðri og féll ekki í skuggann. Smáatriðin á hreinu, bandarísku fánalitirnir, síðir kjólar með háaum klaufum, heklaðar flíkur og buxnadragtir. 

Margt að skoða en hér koma nokkur flott lúkk en Marc Jacobs fékk að sjálfsögðu til liðs við allar helstu fyrirsæturnar og svo söngkonuna Beth Ditto sem rokkaði tískupallinn eins og henni einni er lagið. 

Joan Smalls
Kendall Jenner
Alek Wek.
Karen Elson
Hanne Gabi Odiele
Bella Hadid
Beth Ditto
Hljómsveit spilaði undir sýningunni.
 
One Night Only: @themarcjacobs presents #MarcJacobsPremiere Spring '16

A video posted by Marc Jacobs (@marcjacobs) on Sep 17, 2015 at 4:39pm PDT


Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.


×