Glamour

Hausttískan frumsýnd með pompi og pragt

Ritstjórn skrifar
Flottar saman.
Flottar saman. Myndir/Sigurjón Ragnar
Sænska verslanakeðjan Lindex blés til frumsýningarveislu í verslun sinni í Kringlunni í gær í tilefni af því að haustlínan er mætt í búðir. 

Einnig fengu boðsgestir forsmekk af októbertölublaði Glamour sem er væntanlegt í verslanir eftir helgi en forsíðuna prýðir ein farsælasta fyrirsæta landsins, Edda Péturs en hún klæðist einmitt nýju línunni í myndaþætti og viðtal inn í blaðinu. 

Tískuáhugafólk landsins fjölmennti í boðið til að berja nýju línuna augum og styrkja baráttuna gegn krabbameini en 10% af sölunni þetta kvöld runnu til Krabbameinsfélagsins. 

Logi Pedro sá um ljúfa tóna í boðinu og Sigurjón Ragnar smellti myndum. Neðst í fréttinni má finna myndalbúm. 

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður og Erna Hrund Hermannsdóttir.
Sigurborg Selma og Elísabet Gunnarsdóttir.
Logi Pedro sá um að koma gestum í helgarstuð.


×