Körfubolti

Umfjöllun og viðtöl: FSu - ÍR 81-91 | ÍR vann þrátt fyrir meiðsli Mitchell

Bjarmi Skarphéðinsson skrifar
Vísir/Vilhelm
ÍR sótti góðan sigur á Selfoss þegar þeir unnu FSu í 2. umferð Domino's-deildar karla í kvöld.

FSu byrjaði leikinn betur en gestirnir vöknuðu til lífsins og komu sér þægilega inn í leikinn áður en flautað var til hálfleiks. Jontahan Mitchell var sterkur í liði gestana og nýtti sér vel veikleika FSu inn í teignum góða.

Mikið var flautað í Iðu í kvöld og leikurinn komst ekki í mikið flæði og staðan í hálfleik 36-37 fyrir ÍR.

Seinni hálfleikur fór vel af stað fyrir gestina og náðu þeir fljótlega að koma sér 7 stigum yfir. FSu kom sterkt til baka og jafnaði leikinn og var það að miklu leyti Chris Caird að þakka sem var áberandi í þriðja leikhluta. FSu leiddu leikinn fyrir lokahlutann, 65-63.

Jafnt var framan af 4.leikhluta en ÍR var þó skrefinu á undan. Jonathan Mitchell fór meiddur af velli þegar um 5 mínútur voru eftir af leiknum en það virtist þétta raðir ÍR-inga sem siglu heim góðum sigri 81-91 undir styrkri stjórn frá Sveinbirni Claasen sem var frábær í seinni hálfleik.

Olsen: Spiluðum ekki sem lið

„Við spiluðum ekki sem lið í kvöld og það vantaði hjartað í þetta hjá okkur,“ sagði vonsvikinn Erik Olson, þjálfari FSu, eftir tap hans manna fyrir ÍR í Iðu í kvöld.

FSu virtist aldrei komast almennilega í gang í leiknum og voru stirðir í sóknarleik sínum. Þá fór vörn liðsins að leka illa í fjórða leikhluta.

„Við byrjðum á því að spila góða vörn og náðum að halda aftur af þeim. En þegar það lá mest við að stöðva þá virtumst við algjörlega missa ákafann í varnarleik okkar.“

Nýliðar FSu hafa nú tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á tímabilinu en Olson hefur ekki áhyggjur af því.

„Við vissum að við þyrftum að læra á hverja aðra og nýjar aðstæður. Við erum þó vonsviknir þar sem að okkur fannst að við áttum góðan möguleika á að vinna báða þessa leiki.“

FSu-ÍR 81-91 (15-18, 21-19, 29-26, 16-28)

FSu: Cristopher Caird 24/7 fráköst, Christopher Anderson 20/9 fráköst, Maciej Klimaszewski 10/4 fráköst, Hlynur Hreinsson 10/5 stoðsendingar, Ari Gylfason 8/6 stoðsendingar, Birkir Víðisson 4, Gunnar Ingi Harðarson 3/7 fráköst, Arnþór Tryggvason 2.

ÍR: Jonathan Mitchell 23/13 fráköst, Oddur Rúnar Kristjánsson 20, Sveinbjörn Claessen 17/5 stoðsendingar, Vilhjálmur Theodór Jónsson 14, Kristján Pétur Andrésson 7/4 fráköst, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 5/6 fráköst, Daði Berg Grétarsson 3, Trausti Eiríksson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×