Körfubolti

Körfuboltaveisla á Vísi og Stöð 2 Sport

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kjartan Atli og félagar lofa stuði í kvöld.
Kjartan Atli og félagar lofa stuði í kvöld. vísir/vilhelm
Dominos-deild karla hófst í gær og í kvöld verður fyrsti leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þá tekur Stjarnan á móti Íslandsmeisturum KR en báðum liðum er spáð velgengni í vetur.

Leikurinn verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport og einnig verður hægt að horfa á leikinn beint á Vísi. Hann hefst klukkan 19.15.

Klukkan 22.00 hefst síðan Dominos körfuboltakvöld með Kjartani Atla Kjartanssyni og félögum. Þar munu þeir gera upp fyrstu umferðina.

Þessi körfuboltaveisla verður öll í beinni á Vísi sem og í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.

Kjartan Atli mun svo leyfa fólki að kíkja á bak við tjöldin í aðdraganda þáttar á snapchatti íþróttadeildar. Snappið er sport365.


Tengdar fréttir

Sjáðu upphitunarþátt Körfuboltakvölds

Vísir býður lesendum sínum upp á að horfa á fyrsta þátt Dominos-Körfuboltakvölds sem var á dagskrá á Stöð 2 Sport í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×