Golf

Tiger Woods einn af þeim fyrstu til að sjá Spectre

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tiger birti þessa mynd á Twitter
Tiger birti þessa mynd á Twitter vísir
Kylfingurinn Tiger Woods er ekkert að fara á kostum á golfvellinum þessa dagana.

Hann fékk aftur á móti einkaforsýningu á nýjustu James Bond myndinni Spectre.

„Takk fyrir að bjóða okkur fjölskyldunni og vinum að sjá myndina,“ skrifar Woods á Twitter í dag.

„Spectre var ótrúleg.“

Eins og Vísir hefur greint frá hefur Spectre fengið nokkuð góða dóma frá gagnrýnendum en myndin verður lengst Bond-myndin frá upphafi, 148 mínútur.

Hér að neðan smá sjá tístið frá þessum sigursæla kylfingi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×