Körfubolti

Ívar: Við bárum virðingu fyrir KR og dómararnir líka

Ingvi Þór Sæmundsson á Ásvöllum skrifar
Ívar og lærisveinar hans eru búnir að tapa tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum í Domino's deildinni.
Ívar og lærisveinar hans eru búnir að tapa tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum í Domino's deildinni. vísir/ernir
Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka, var ekki sáttur með sína menn eftir 72-95 tap fyrir KR í Schenker-höllinni í kvöld.

"Við erum ekki að vinna sem lið, heldur eins og fimm einstaklingar. Okkur vantaði smá stemmningu og við þurfum að vinna í því og vinna sem lið. Það er eins og okkur finnist þetta leiðinlegt og ég verð að kíkja á hvað við getum gert til að bæta úr því," sagði Ívar.

"Ég á örugglega stóran þátt í því af hverju okkur finnst ekki gaman. Við þurfum að vinna í þessu og fá strákana til að finnast aftur gaman að spila körfubolta."

KR byrjaði leikinn mun betur og eftir þriggja mínútna leik var staðan orðin 0-7, Íslandsmeisturunum í vil. Þá tók Ívar leikhlé og setti leikstjórnandann Emil Barja á bekkinn.

"Ég var bara ósáttur við hann. Emil er kannski ekki búinn að spila neitt sérstaklega í síðustu leikjum en hann byrjaði líka svona í fyrra. Vonandi stígur hann upp og ég hef fulla trú á að hann geri það.

"Hann er ekkert sáttur við sjálfan sig en ég hef ekkert miklar áhyggjur af honum," sagði Ívar sem var temmilega sáttur með fyrri hálfleikinn en Haukar voru fimm stigum undir, 45-50, að honum loknum.

"Við vorum alveg þokkalegir í fyrri hálfleik og fáum á okkur þriggja stiga flautukörfu undir lok 1. leikhluta, hann dripplaði að vísu út af. Það voru einhverjir blindir að dæma þennan leik, held ég.

"Það munaði um þetta en svo byrjum við seinni hálfleikinn eins og algjörir aumingjar og KR náði góðri forystu sem þeir létu ekkert af hendi og við höfðum ekki metnað til að ná þeim."

Ívar var ekki sáttur með dómara leiksins og taldi þá hafa sýnt KR-ingum full mikla virðingu.

"Við bárum virðingu fyrir KR-ingum í þessum leik og þeir gerðu það líka. Við töpuðum ekki á dómgæslunni, langt því frá, en það er erfitt ef dómararnir bera líka virðingu fyrir KR," sagði Ívar að endingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×