Körfubolti

Engin breyting hjá Njarðvík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Friðrik Ingi Rúnarsson er þjálfari Njarðvíkur.
Friðrik Ingi Rúnarsson er þjálfari Njarðvíkur. Vísir
Njarðvík mun ekki styrkja leikmannahópinn að svo stöddu en lokað verður fyrir félagaskipti á miðnætti.

Þetta staðfesti Gunnar Örlygsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, við íþróttadeild í dag.

Njarðvík hafði hug á að styrkja hópinn og finna leikstjórnanda en Björn Kristjánsson, leikmaður KR, hafði verið orðaður við Njarðvíkurliðið.

„Liðið hefur verið að eflast í síðustu leikjum en engu að síður munum við skoða leikmannamarkaðinn þegar glugginn opnast 1. janúar,“ sagði Gunnar.

Njarðvík er í fimmta sæti Domino's-deildar karla með átta stig. Liðið hefur unnið síðustu tvo leiki sína í deildinni - gegn Tindastóli og FSu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×