Enski boltinn

Njarðvík og Keflavík síðustu tvö liðin inn í átta liða úrslitin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson. Vísir/Anton
Reykjanesbæjarliðin Njarðvík og Keflavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Poweradebikars karla í körfubolta eftir örugga sigra í sínum leikjum í sextán liða úrslitunum.

Njarðvíkingar unnu 30 stiga sigur á Hamar í Hveragerði, 99-69, þar sem sex leikmenn Njarðvíkurliðsins skoruðu ellefu stig eða meira. Nýliðinn Snjólfur Marel Stefánsson skoraði meðal annars fjórtán stig í kvöld.

Keflvíkingar unnu 27 stiga sigur á toppliði 1. deildar en Valsmenn stóðu í heimamönnum í fyrsta leikhlutanum en eftir það var Keflavíkurliðið með góð tök á leiknum.

Í pottinum í átta liða úrslitunum verða úrvalsdeildarliðin Grindavík, Þór Þorl., Haukar, Keflavík og Njarðvík auk Skallagríms og b-liði Njarðvíkur. B-lið Hauka og Íslandsmeistarar KR eiga eftir að spila en sá leikur fer ekki fram fyrr en um næstu helgi.



Stigaskor leikmanna í leikjum kvöldsins:

Hamar -Njarðvík 69-99 (13-25, 15-33, 31-24, 10-17)

Hamar : Örn Sigurðarson 17/5 fráköst, Samuel Prescott Jr. 14/6 fráköst/5 stolnir, Ármann Örn Vilbergsson 12, Þorsteinn Gunnlaugsson 11/9 fráköst/5 stoðsendingar, Þórarinn Friðriksson 6, Oddur Ólafsson 4, Sveinn Hafsteinn Gunnarsson 3, Bjartmar Halldórsson 2.

Njarðvík: Marquise Simmons 15/9 fráköst, Hjalti Friðriksson 15/8 fráköst, Snjólfur Marel Stefánsson 14, Ólafur Helgi Jónsson 14/5 fráköst/4 varin skot, Hjörtur Hrafn Einarsson 11, Haukur Helgi Pálsson 11/4 fráköst, Adam Eiður Ásgeirsson 6, Jón Arnór Sverrisson 5/5 fráköst, Logi  Gunnarsson 3, Hilmar Hafsteinsson 3, Maciej Stanislav Baginski 2.



Keflavík-Valur 97-70 (27-24, 27-16, 23-9, 20-21)

Keflavík: Earl Brown Jr. 28/9 fráköst/3 varin skot, Magnús Már Traustason 15/4 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 12, Guðmundur Jónsson 9, Andri Daníelsson 8/5 fráköst, Reggie Dupree 7/4 fráköst, Andrés Kristleifsson 6, Davíð Páll Hermannsson 4/5 fráköst, Arnór Ingi Ingvason 3, Ágúst Orrason 2/6 fráköst, Kristján Örn Rúnarsson 2, Valur Orri Valsson 1/5 stoðsendingar.

Valur: Jamie Jamil Stewart Jr. 15/10 fráköst, Benedikt Blöndal 14, Illugi Steingrímsson 8/6 fráköst, Þorgeir Kristinn Blöndal 8, Elías Orri Gíslason 5, Leifur Steinn Arnason 5, Sigurður Rúnar Sigurðsson 5/4 fráköst, Illugi Auðunsson 3/12 fráköst, Friðrik Þjálfi Stefánsson 3, Kormákur Arthursson 2, Sigurður Dagur Sturluson 2/5 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×