Konur í aðalhlutverki Magnús Guðmundsson skrifar 9. apríl 2015 12:30 Hanna Styrmisdóttir er listrænn stjórnandi Listahátíðarinnar í Reykjavík og hún setur listsköpun kvenna í öndvegi á hátíðinni í ár sem og næsta ár. Visir/Stefán „
Við skoðuðum stöðu kvenna innan Listahátíðar í Reykjavík allt frá árinu 1970 og þetta hefur ekki verið nógu gott og við viljum gera þetta betur,“ segir Hanna Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðarinnar, sem í gær kynnti dagskrá komandi hátíðar dagana 13. maí til 7. júní undir yfirskriftinni Fyrri hluti. Seinni hluti sömu hátíðar verður svo kynntur til leiks fyrir hátíðina 2016 enda er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur með því viðamikla verkefni að rétta hlut höfundarverks kvenna á vegum hátíðarinnar. Hanna bendir á að það hafi, allt frá því undirbúningur hátíðarinnar hófst, verið ákveðið að tengja hana við aldarafmæli kosningaréttar kvenna og því hafi verið farið í að skoða þessi mál. „Það kom fljótt í ljós að ein hátíð myndi engan veginn duga til, að gera þessu víðfeðma viðfangsefni alvöru skil enda enginn skortur á framúrskarandi list kvenna á öllum sviðum. Okkur langaði til þess að gera meira, það er margt sem bíður næsta árs og því verður næsta hátíð framhaldshátíð. Málið er að áhuginn hjá spennandi listamönnum víða að úr heiminum er til staðar en það er ekki einfalt að koma fólki að í þessum nokkurra vikna glugga sem listahátíðin er ár hvert.“ Hanna leggur einnig mikla áherslu á að það eru fleiri verkefni sem brenna á hátíðinni. Stór hluti hátíðarinnar fer fram í miðborginni og mikil áhersla er lögð á viðburði utan miðasölu og aðgengismál almennt. „Á síðustu hátíðum hefur of lítið farið fyrir opnum og almennum viðburðum að okkar mati en nú erum við með viðburði sem allir geta notið. Þar rísa Guerilla Girls og BANDALOOP hvað hæst á opnunarhátíðinni en það er sitthvað fleira spennandi í farvatninu.“ Í undirbúningi eru aðgerðir til til að gera vefsíðu, viðburði og sýningar hátíðarinnar aðgengilegar öllum notendum. En auk þess er leitast við að auka efnahagslegt aðgengi eins og kostur er. „Opnanir á myndlistarsýningar eru öllum opnar og er myndlistin þannig sérstaklega aðgengileg. Að auki reynum við eins og frekast er unnt að halda miðaverði á viðburði í lágmarki. Þá kynnum við nú til sögunnar sérstakt afsláttarkort sem gengur undir heitinu Vinur Listahátíðar sem kostar 3.900 kr. Með því má fá 30% afslátt frá miðaverði og allt að 50% afslátt á sýningardegi. Þannig að það er þó alltént hægt að taka sénsinn á að ekki seljist upp og njóta umtalsverðra afsláttarkjara. Það sem mestu skiptir er að sem flestir nái að njóta alls þess sem hátíðin hefur að bjóða.“ Það er óhætt að fullyrða að það er fjöldi spennandi viðburða í farvatninu á Listahátíð Reykjavíkur og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Það er alltént alltof langt mál að ætla að gera öllu skil í þessum fátæklegu orðum og því um að gera fyrir fólk að kynna sér dagskrána á næstunni og njóta svo listarinnar með hækkandi sól.
Listahátíð í Reykjavík Menning Mest lesið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Bíó og sjónvarp Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Menning Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Lífið Stiklusúpa: Allt það helsta sem kynnt var á Game awards Leikjavísir Fleiri fréttir Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Kanónur í jólakósí „Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig ábyrgan“ Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Munur er á manviti og mannviti Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Lyktarlítill dans, Lux og „metnaðarlaus stefna í íslensku“ Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Helgi snýr heim: „Laus við leiðindin sem bjuggu þetta til“ Jón Ásgeirsson tónskáld er látinn Fimm fáránlegar biðraðir Íslendinga Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Frumsýning á Vísi: Skoppa og Skrítla bjóða krökkunum í jólapartý Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Bubba svarað og „barnaleg vitleysa“ í Borgó George R. R. Martin á Íslandi: „Það er smá svalt hérna“ Skálað fyrir glæsilegustu dönsurum landsins og Jónsa úr Sigur Rós Krafa um betri ensku en íslensku reyndust mistök Sjá meira