Innlent

Vilja að miðhálendið verði friðað

Snorri Baldursson nýkjörinn formaður Landverndar.
Snorri Baldursson nýkjörinn formaður Landverndar.
„Það eru svo mörg góð verkefni sem Landvernd hefur verið að vinna að og ég mun ekki breyta um stefnu. Þó er alveg möguleiki að með tímanum verði einhverjar nýjar áherslur,“ segir Snorri Baldursson nýr formaður Landverndar.

Snorri tekur við af Guðmundi Herði Guðmundssyni sem formaður Landverndar. Snorri var kosinn formaður á aðalfundi samtakanna sem fram fór á laugardag. Guðmundur Hörður hefur leitt samtökin síðan 2011.

„Það er á nægu að taka og munum við stjórnin hittast fljótlega og fara yfir málin,“ segir Snorri, sem er líffræðingur að mennt, og hefur meðal annars getið sér gott orð sem rithöfundur. Bók hans, Lífríki Íslands, hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin 2014.

Auk formannskjörsins voru fimm ályktanir samþykktar á fundinum. Skoraði aðalfundurinn á stjórnvöld að hefja vinnu við friðun miðhálendisins með stofnun þjóðgarðs. Að auki var þingsályktunartillögu atvinnuveganefndar Alþingis harðlega mótmælt á fundinum, en hún snýr að færslu fimm virkjanahugmynda úr biðflokki í orkunýtingarflokk rammaáætlunar án þess þó að fullnægjandi umfjöllun hafi átt sér stað.

Einnig var krafist frekari rannsókna á áhrifum ferðamanna á náttúruperlur landsins auk þess sem krafa var gerð um aukna landvörslu og að gæði yrðu tryggð í uppbyggingu innviða á ferðamannstöðum.

Skoraði aðalfundurinn jafnframt á stjórnvöld að tryggja vernd Jökulsárlóns og Breiðamerkursands og lögðu til að skoðað yrði hvort fótur væri fyrir að svæðið yrði hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×