Innlent

Styrkja nýsköpun í hrossarækt

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Efla á markaðssókn hestsins.
Efla á markaðssókn hestsins. Vísir/Stefán
Umhverfisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna hrossaræktunar.

Markmið styrkveitingarinnar er að efla markaðssókn og ræktun íslenska hestsins og fylgja eftir þeirri fagmennsku sem hefur hlotist í þjálfun hestsins.

Lögð er áhersla á að styrkja nýsköpunarstarfsemi sem getur orðið sjálfbær eftir þróunartímabil. Sjóðurinn mun hafa rúmar sex milljónir til ráðstöfunar í ár.

Umsóknarfrestur vegna styrkveitinga rennur út 3. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×