Innlent

Lofar ekki stuðningi sínum

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar
Mikið var deilt um hvort ætti að ræða tillögu atvinnuveganefndar áfram á þingi í gær. Umhverfisráðherra segist virða vald Alþingis til breytingartillagna.
Mikið var deilt um hvort ætti að ræða tillögu atvinnuveganefndar áfram á þingi í gær. Umhverfisráðherra segist virða vald Alþingis til breytingartillagna. fréttablaðið/stefán
Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra segist hafa lagt ríka áherslu á að farið yrði í einu og öllu eftir verkferlum Rammaáætlunar. Þess vegna hefði hún kosið að verkefnisstjórn hefði fjallað um virkjanakosti í neðrihluta Þjórsár. Hún sé hins vegar sammála því að Hvammsvirkjun verði færð í nýtingarflokk, eins og forveri hennar, Sigurður Ingi Jóhannsson, lagði til.

„Það segir sig sjálft að ég stend alveg með mínum forvera í því að ég hefði eflaust gert eins og hann að setja fram Hvammsvirkjun. Þá eru, eðli málsins samkvæmt, hinir kostirnir áfram í verkefnastjórninni.“

Sigrún segist hins vegar standa frammi fyrir orðnum hlut og hún verði að virða þingræðið. Forseti hafi úrskurðað tillögu atvinnuveganefndar þingtæka og hún sætti sig að sjálfsögðu við það.

En mun hún styðja tillöguna?

„Við sjáum bara hvernig atkvæðagreiðslan fer.“

Sigrún segir að hún hafi farið á fund atvinnuveganefndar í desember, þegar hún var þingflokksformaður Framsóknarflokksins, þar sem fjallað var um umrædda virkjanakosti.

„Ég mætti á þann nefndarfund og bað menn að fara nokkuð varlega. Það ætti ekki að fara of geyst. Það var mitt mat sem þingflokksformaður Framsóknar.“

Sigrún hélt fundi með verkefnisstjóra Rammaáætlunar, Stefáni Gíslasyni, þegar hún tók við sem umhverfisráðherra um áramótin. Hún segist hafa lagt ríka áherslu á það að farið væri í einu og öllu eftir lögum og reglum og verkfærið Ramminn nýtt á réttan hátt.

„Ég setti metnað minn í það að vilja að einu sinni yrði þetta verkfæri nýtt alveg. Nú var fjármagnið komið þannig að það var ekki hindrun. Einmitt út af þessu öllu saman sagði ég að ég gæti ekki sætt mig við Hagavatnsvirkjun,“ segir Sigrún og vísar til þess að hún hafði ekki verið fullrannsökuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×