Innlent

Eldhætta af ferðahátalara

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Beats Pill XL hátalarar hafa verið seldir um heim allan frá því í janúar í fyrra.
Beats Pill XL hátalarar hafa verið seldir um heim allan frá því í janúar í fyrra. Mynd/Apple
Apple hefur á heimsvísu kallað inn ferðahátalara sem nefnast Beats Pill XL vegna hættu á að rafhlaða þeirra ofhitni og valdi eldhættu.

Fram kemur á vef Mannvirkjastofnunar, sem vekur athygli á innköllun Apple, að hátalararnir hafi verið seldir um heim allan frá því í byrjun síðasta árs. Fólk gæti því hafa keypt hátalara þessarar tegundar á ferðalögum erlendis eða í verslunum sem selja Apple-varning hér á landi.

Leiðbeiningar um skil á vörunni er að finna á vef Apple.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×