Nýr Kia Optima frumsýndur Finnur Thorlacius skrifar 21. janúar 2016 09:54 Kia Optima af fjórðu kynslóð.
Nýr Kia Optima verður frumsýndur hjá Bílaumboðinu Öskju nk. laugardag kl. 12-16. Kia Optima er fallegur og rúmgóður fjölskyldubíll sem vakið hefur verðskuldaða athygli. Þetta er fjórða kynslóð Optima sem er flaggskipið í hinni breiðu fólksbílalínu Kia. Hönnunin er sportleg og falleg bæði að innan og utan. Mestu breytingarnar eru að framan þar sem komin eru ný LED aðalljós og þokuljós og að aftan eru komin ný og lagleg LED ljós. Talsverð breyting er í innanrýminu og þar er nú að finna meiri þægindi og lúxus en áður. Kia Optima kemur hingað til lands eingöngu í Premium útfærslu til að byrja með en mun verða síðar í boði í EX úgáfu. Í Premium útgáfu er Kia Optima mjög vel búinn með leðursætum, glerþaki, bakkmyndavél og rafstýrðum framsætum svo eitthvað sé nefnt. Í bílnum er tæknivæddur 8” upplýsingaskjár sem er staðalbúnaður og veitir aðgengi að öllu því helsta sem ökumaður og farþegar þurfa á að halda. Bíllinn er einnig með þráðlausri hleðslu fyrir snjallsíma og lyklalausu aðgengi. Nýr Optima er enn stærri og rúmbetri en forverinn sem nú þykir rúmgóður í alla staði. Ný og endurhönnuð 1,7 lítra dísilvél er í nýja bílnum sem skilar 141 hestöflum. Þessi nýja vél er bæði eyðslugrennri og umhverfismildari en í forveranum. Þá kemur Optima með nýrri 7 gíra DCT sjálfskiptingu sem fengið hefur mjög góða dóma. Í fyrsta skipti mun Kia bjóða upp á sérstaka sportútgáfu Kia Optima GT sem verður sérlega kraftmikil með 241 hestafla bensínvél með forþjöppu. Optima GT og Optima í Plug-In Hybrid útfærslu munu verða kynntir síðar. Þessar tvær útfærslur eru væntanlegar á markað eftir um ár og sömu sögu er að segja um Optima í langbaksútfærslu sem mun bjóða upp á enn meira farangursrými. Nýr Kia Optima er að sjálfsögðu með 7 ára ábyrgð eins og allir nýir Kia bílar en þetta er lengsta ábyrgð sem er í boði hjá bílaframleiðanda í heiminum í dag.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar eldflaugar innan nokkurra mánaða Erlent