Fyrsta tónleikaferðin sem aðalnúmerið um Bandaríkin Gunnar Leó Pálsson skrifar 10. febrúar 2016 11:45 Jökull vonast til að platan komi út í sumar. mynd/Kyle Reinford
Hljómsveitin Kaleo er um þessar mundir á leið í sína fyrstu tónleikaferð um Bandaríkin sem svokallað aðalnúmer. „Þetta er okkar fyrsti „headline“ túr um Bandaríkin sem er mjög spennandi, sérstaklega þar sem hann er að seljast upp hratt. Túrinn hefst 18. febrúar og er í ca. fjórar vikur,“ segir Jökull Júlíusson, söngvari og annar gítarleikara hljómsveitarinnar Kaleo. Þeir félagar verða með upphitunarhljómsveit á tónleikaferðalaginu sem heitir Firekid en sveitin sú er hjá sama plötufyrirtæki og Kaleo, Atlantic Records. Hljómsveitin hefur gert út frá höfuðstað Texas-fylkis, Austin, í rúmt ár og hefur haft í nógu að snúast. Hún er um þessar mundir að leggja lokahönd á upptökur á sinni fyrstu plötu vestanhafs. „Upptökur eru búnar að ganga mjög vel. Við eyddum nánast öllum janúar í Nashville svo að við erum nýkomnir aftur til Texas í undirbúning fyrir næsta túr,“ segir Jökull.Davíð Antonsson, trommuleikari Kaleo, og Jökull spekingslegir á svip.mynd/Kyle ReinfordHann getur þó ekki sagt til um hvenær platan verður tilbúin að svo stöddu. „Hún verður vonandi til sem fyrst. Við erum að hefja mix-ferlið á einhverjum lögum svo við erum langt komnir en það er ómögulegt að segja nákvæmlega hvenær hún verður tilbúin. Við vonumst til að hún komi út í sumar. Við erum auðvitað að gefa út í fyrsta skipti með Atlantic Records svo að þeir stjórna svolítið ferðinni með útgáfutíma og markaðssetningu,“ útskýrir Jökull. Það er hinn þrefaldi Grammy-verðlaunahafi Jacquire King sem stýrir upptökum á plötunni. „Hann er frábær í alla staði og samstarfið hefur gengið mjög vel.“ Lagið No Good, sem sveitin sendi frá sér á síðasta ári, rataði í nýjan bandarískan sjónvarpsþátt sem ber nafnið Vinyl. Þá var lagið Way Down We Go í tölvuleiknum vinsæla Fifa 16. Eru fleiri lög úr ykkar smiðju á leið í sjónvarp eða tölvuleiki á næstunni? „Það er alltaf eitthvað í gangi en það er aðallega útgáfufyrirtækið okkar ásamt umboðsskrifstofunni og plötufyrirtækinu sem er með puttana í þessu. Það er mikil eftirspurn, sérstaklega í ljósi þess að við höfum aðeins gefið út þrjú lög hérna úti enn sem komið er og maður hefur jafnvel verið beðinn um að semja lög fyrir kvikmyndir. Þetta snýst síðan um að velja hvað hentar og hvað ekki,“ segir Jökull.Jökull Júlíusson ræðir málin í hljóðverinu Blackbird Studio í Nashville.mynd/Kyle ReinfordKaleo stefnir á að gefa út nýtt lag í þessum mánuði eða þeim næsta. „Við erum að vonast eftir því að gefa út einhver myndbönd á næstunni og mögulega nýtt lag í þessum eða næsta mánuði.“ Sveitin gaf út myndband við lagið Way Down We Go sem tekið er ofan í Þríhnúkagíg í sumar en myndbandið hefur vakið mikla athygli. Á dögunum sendi sveitin svo frá sér annað myndband sem sýnir gerð myndbandsins í Þríhnúkagíg en það er í spilaranum hér að neðan. „Við höfum fengið gífurlega mikil viðbrögð við vídeóinu hérna úti rétt eins og laginu sem gengur mjög vel í útvarpi. Vídeóið á bak við tjöldin er einmitt skemmtilegt og sýnir hversu mikil vinna var á bak við gerð myndbandsins.“ Eins og fyrr segir er nóg fram undan hjá sveitinni og eftir túrinn tekur við tónleikahald á hinum ýmsu tónleikahátíðum. „Eftir túrinn fáum við um viku í Austin þar sem South By South West festivalið verður í gangi og svo förum við til Ástralíu beint í kjölfarið. Svo hefst festival-tímabilið fljótlega eftir það.“ Spurður út í hvort þeir félagar komi eitthvað til Íslands á næstunni hefur Jökull þetta að segja: „Þetta er góð spurning. Það þarf oft að berjast fyrir því að fá tíma til þess. Við erum gífurlega bókaðir allt þetta ár en ég er að vonast eftir því að við getum komið eitthvað í lok júní. Það er óvíst ennþá en eins og ég hef áður sagt þá er það varla í boði, fyrir mér, að missa alfarið af íslenska sumrinu.“
Tónlist Mest lesið „Á erfitt með að gera mér í hugarlund eitthvað rómantískara“ Makamál Emilíana Torrini einhleyp Lífið „Vinkonusambönd virka aldrei ef það er afbrýðisemi“ Lífið Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Bíó og sjónvarp Aðventan með Lindu Ben: Mjúkir kanilsnúðar með valhnetukaramellu Jól Eiríkur og Guðrún selja eitt fallegasta hús Vesturbæjarins Lífið Heitasti plötusnúður í heimi í Melabúðinni Lífið Kári og Erla vilja 330 milljónir fyrir lúxusíbúð við höfnina Lífið Dragon Age Veilguard: Fimmtán ára ævintýri lýkur Leikjavísir Fólkið sem fer yfir tíu tonn af fatnaði á dag Lífið Fleiri fréttir Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira