Golf

Fowler efstur eftir tvo hringi á Honda Classic

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Rickie Fowler horfir hér á eftir upphafshöggi á Honda Classic mótinu.
Rickie Fowler horfir hér á eftir upphafshöggi á Honda Classic mótinu. Vísir/Getty
Rickie Fowler lauk leik á öðrum hringi á Honda Classic-mótinu í Flórída á fjórum höggum undir pari og er með eins högga forskot á Jimmy Walker eftir tvo hringi.

Fowler fékk fjóra fugla á hringnum í gær og enga skolla annan daginn í röð en spænski kylfingurinn Sergio Garcia sem leiddi eftir fyrsta dag náði sér ekki á strik í gær og lauk leik á einu höggi undir pari.

Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy náði sér ekki á strik á öðrum degi mótsins og lauk leik á tveimur höggum yfir pari í gær. Lék hann báða dagana á yfir pari og missti fyrir vikið af niðurskurðinum.

Þriðji dagur Honda Classic mótsins verður í beinni á Golfstöðinni og hefst útsending klukkan 18.00 en leikið er á Palm Beach-vellinum í Flórída.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×