Rimac rafmagnsbílinn er 2,6 sekúndur í 100 Finnur Thorlacius skrifar 9. mars 2016 10:36 Rimac Concept_One.
Króatíski rafmagnsbílaframleiðandinn Rimac kynnti bílinn Concept_One á bílasýningunni í Frankfürt fyrir 5 árum og er nú aftur að sýna þennan bíl á bílasýningunni í Genf í þessum mánuði og þá tilbúinn til afhendingar fyrir fyrsta kaupanda bílsins. Þessi bíll er enginn hefbundinn rafmagnsbíll því hann er ári snöggur og tekur sprettinn í 100 km hraða á 2,6 sekúndum. Hann kemst í 200 á 6,2 sekúndum og í 300 á 14,2 sekúndum. Þessar fáránlegu hröðunartölur segja þó ekki allt um þennan magnaða handsmíðaða bíl. Á þeim 5 árum sem liðin eru frá fyrstu kynningu hans hafa miklar breytingar verið gerðar. Hann er nú fjórhjóladrifinn og með “torque-vectoring” kerfi sem eykur verulega aksturshæfni hans. Við hvert hjól hans er mótor til stýringar bílsins sem er afar nákvæm og fara þar á milli hundruðir skipana á hverri sekúndu til að tryggja sem nákvæmasta stýringu bílsins. Þessi ofurbíll er ógnardýr en Rimac hefur ekki gefið upp nákvæman verðmiða á honum að sinni.
Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent