Mercedes Benz Maybach jeppi á teikniborðinu Finnur Thorlacius skrifar 5. apríl 2016 10:30 Mercedes Benz GLS.
Nú þegar Bentley hefur þegar hafið sölu á Bentayga lúxusjeppanum, Rolls Royce er á lokastigi hönnunar á Cullinan jeppanum og Lamborghini er að leggja lokahönd á Urus jeppann er ekki nema von að Mercedes benz vilji taka þátt í kapphlaupinu um stórefnaða kaupendur lúxusjeppa. Því er Benz að íhuga að setja á markað jeppa sem bera myndi merki Maybach lúxusmerkisins sem er í eigi Benz og hafa forsvarsmenn fyrirtækisins látið hafa eftir sér að slíkt komi sterklega til greina. Sala Mercedes Benz á jeppum hefur tekið stór stökk síðan Mercedes Benz kynnti M-jeppa sína til leiks árið 1997 og hefur sala jeppa aldrei verið meiri í heiminum en nú. Greinilega er þörf á að bjóða afar vandaða og dýra jeppa því kaupendur þeirra má finna víða og eru móttökur Bentayga jeppans frá Bentley skýrt dæmi um það. Líklega verður lúxusjeppi Benz sem bæri Maybach merkið smíðaður uppúr GLS-jeppa Mercedes Benz. BMW er einnig með X7 jeppa á teikniborðinu og verður hann bæði stærri og meiri lúxusbíll en X5 jeppinn og mun kosta ekki minna en 100.000 dollara.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent