Körfubolti

Rúnar markahæstur í endurkomusigri

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Rúnar Kárason skoraði sex mörk í kvöld.
Rúnar Kárason skoraði sex mörk í kvöld. vísir/afp
Rúnar Kárason, landsliðsmaður í handbolta, átti frábæran leik og var markahæstur í liði Hannover-Burgdorf sem vann útisigur á Stuttgart, 23-21, í þýsku 1. deildinni í handbolta í kvöld.

Gestirnir voru fjórum mörkum undir gegn nýliðunum í hálfleik, 11-7, en Hannover minnkaði muninn jafnt og þétt. Þegar tíu mínútur voru eftir var staðan 20-18 fyrir Stuttgart.

Rúnar Kárason jafnaði metin í 20-20 á 53. mínútu og skömmu síðan var Hannover komið yfir. Það var svo sterkara á lokasprettinum og vann sterkan endurkomusigur á útivelli.

Rúnar var frábær í kvöld og skoraði sex mörk, þar af fimm mörk í seinni hálfleik þar sem hann leiddi sína menn til sigurs. Hann var sem fyrr segir markahæsti leikmaður síns liðs.

Hannover-Burgdorf komst með sigrinum upp fyrir Gummersbach í áttunda sæti deildarinnar en liið er með 29 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×