Ný mótorhjólaleiga Finnur Thorlacius skrifar 12. apríl 2016 09:07 Hafsteinn Níelsson og Hlynur Björn Pálmason frá Honda við tvo af fákum leigunnar.
Nýtt leigufyrirtæki sem leigir út mótorhjól hefur verið stofnað og fékk það fyrstu hjólin sín afhent í gær. Fyrirtækið heitir Offroadtours.is og að því standa þrír eigendur, þeir Hafsteinn Níelsson, Helgi Bjarni Birgisson og Njáll Gunnlaugsson. Tveir þeirra eru reynsluboltar úr þessum geira en Njáll stofnaði ferðafyrirtækið Biking Viking Motorcycle Tours og Hafsteinn Riding Iceland á sínum tíma. "Við erum mjög spenntir fyrir sumrinu" sagði Hafsteinn Níelsson í samtali við Visir.is í dag. "Við vorum að fá í hendurnar tvö glæný Honda Africa Twin ferðahjól sem er það heitasta í heimi ferðahjóla í dag og vinnur hvert samanburðarprófið á fætur öðru. Auk þess verðum við með Honda NC750X, CRF 250L torfæruhjól og CB 1100 fyrir þá sem vilja taka stutta síðdegistúra á flottu hjóli," sagði Hafsteinn um hjólin sem boðið verður uppá. Að sögn Hafsteins er hugmyndin að leigja hjólin að mestu þetta sumarið en bjóða uppá skipulagðar ferðir á næsta ári. Reynslan er sú að fólk er að skipulegga svona ferðir með árs fyrirvara og því töldum við sniðugt að fara strax af stað. Nýja fyrirtækið hefur þegar tekið við fyrstu bókunum á leigum og verið er að semja við ferðaskipuleggjendur erlendis um skipulagðar ferðir."
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent