Chloe Moretz opinberar samband sitt við Brooklyn Beckham Ritstjórn skrifar 18. maí 2016 09:30 Þetta er svo sannarlega glæsilegt par. Myndir/Getty
Það getur verið erfitt að finna sér dress fyrir fyrsta stefnumótið, hvað þá fyrsta skiptið á rauða dreglinum saman, en þeim Chloe Mortez og Brooklyn Beckham tókst vel til. Þau voru stödd saman á frumsýningu myndarinnar Neighbors 2 þar sem Chloe fer með aðalhlutverkið. Chloe var klædd í fallegan svartan blúndukjól frá Alexander McQueen en Brooklyn leyfði kærustunni að skína sem skærast með því að klæða sig í þröngar gallabuxur og brúna Chelsea skó. Það var ekki fyrr en í seinustu viku sem að Chloe viðurkenndi að hún væri í sambandi við son David og Victoriu Beckham en þau voru fyrst orðuð saman fyrir tveimur árum. Þrátt fyrir að þau séu bæði ung þá eiga þau glæstan feril að baki en Chloe hefur leikið í fjölda kvikmynda og Brooklyn hefur setið fyrir í auglýsingaherferðum ásamt því að vera ljósmyndarinn fyrir nýja herferð Burberry. Beckham var afslappaður til fara á meðan Chloe skartaði sínu fegursta.
Mest lesið Óskarinn 2016: Íslensk hönnun á rauða dreglinum Glamour Raf Simons hættur hjá Dior Glamour Litrík götutíska í Berlín Glamour Björk heldur tónleika í Háskólabíó Glamour Dr. McDreamy orðinn förðunarmódel? Glamour Hreinsihanski sem mun gera þér lífið auðveldara Glamour "Umræðan er orðin svo hatursfull og sjúk.“ Glamour Reese og Nicole snúa aftur á skjáinn Glamour Hinn fullkomni hvíti stuttermabolur Glamour Þetta er ómissandi í snyrtibudduna fyrir ferðalagið Glamour