Subaru innkallar 52.000 Outback og Legacy Finnur Thorlacius skrifar 17. maí 2016 09:12 Subaru Outback.
Eigendum 52.000 Subaru Outback og Legacy bíla í Bandaríkjunum og Kanada hefur verið bent á það að leggja bílum sínum vegna galla í stýrisstöngum. Eru þeir af árgerðum 2016 og 2017. Bílar þeirra verða innkallaðir og skipt um þessar stangir, en bilun í þeim getur gert bílana stjórnlausa og því um mjög alvarlegan galla að ræða. Rétt er að taka fram að allir þessir innkölluðu bílar eru í N-Ameríku og enginn þeirra svo vitað sé um er á landi, nema hafi slíkir bílar verið fluttir hingað til lands beint frá Bandaríkjunum eða Kanada. Af þessum 52.000 bílum voru 48.500 seldir í Bandaríkjunum en 3.500 í Kanada. Þessi innköllun nú er svokölluð “Stop Sale”-innköllun og mega söluaðilar þessara bíla hvorki selja né leyfa reynsluakstur á þeim og eigendum bent á að leggaj þeim strax. Gallinn uppgötvaðist hjá einum eiganda Subaru Outback bíls þann 3. maí, en bilunin í bíl hans olli ekki slysi, né heldur hafa aðrir bílar með þennan galla lent í slysi hans vegna. Subaru hefur þegar hafið viðgerðir á þessum gölluðu bílum og lánar eigendum þeirra aðra Subaru bíla á meðan.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent