Hundfúll hafnar Björn Þorláksson 7. sætinu Jakob Bjarnar skrifar 28. júní 2016 14:07 Varla er hægt að segja að Björn geri mikið til að leyna gremju sinni og sárindum, en svo virðist sem frami innan Pítata eigi ekki fyrir honum að liggja.
Björn Þorláksson blaðamaður telur sig grátt leikinn í prófkjöri Pírata. Hann telur stjórn Pírata hafa haldið hæfasta og öflugasta fólkinu, nefnilega sér sjálfum og einhverjum ónefndum öðrum, frá efsta sætum í prófkjöri fyrir alþingiskosningar 2016. Björn var um hríð stjórnandi vefs Hringbrautar en var rekinn þaðan þegar Sigurjón Magnús Egilsson tók við stjórnartaumum þar. Björn snéri sér þá að stjórnmálunum en nú hafnaði hann í 7. sæti í norðausturkjördæmi og ljóst er að honum þykir það langt fyrir neðan sína virðingu, í pistli sem hann ritar um málið á Facebooksíðu sína. „Ég bauð mig fram korter í þrjú en í þessu prófkjöri kom á daginn að fremur fáa inni í litla lokaða prófkjörinu langaði að breyta heiminum með mér,“ skrifar Björn meðal annars.Lítil búbla situr uppi með sjálfa sig Ljóst er að niðurstaðan veldur Birni sárum vonbrigðum, sjálfur hafði hann sóst eftir því að leiða listann en í efsta sæti er Einar Brynjólfsson, Guðrún Ágústa Þórdísardóttir er í öðru sæti og Hans Jónsson í því þriðja. Björn telur um að ræða klíkuskap og segir Pírata í norðausturhéraði vilja skara eld að eigin köku; og hann væntir ekki mikils af þessu fólki. „Ég geng trúr sjálfum mér frá borði sem fyrr, mun læra af því sem ég gat gert betur, en mun vitaskuld ekki þiggja það sæti sem þau vilja nú að ég taki á listanum, sæti sjö. Það var val að svíkja lit hins faglega hlutleysis blaðamannsins, óvirkur sem ég var um skeið, mér verður sennilega fyrirgefið pólitíska hliðarsporið, enda píratar fyrst og fremst andófsafl sem styður róttæka kerfisbreytingu. Hitt skiptir einnig máli varðandi traust og trúnað að lítil búbla hér í norðlensku héraði situr nú uppi með sjálfa sig og eigin ranghugmyndir.“Björn nákvæmlega rétti maðurinn Björn hefur verið óspar og ákaflega duglegur við að dásama lýðræðisfundi Pírata í aðdraganda prófkjörsins. Fyrir tveimur dögum ritaði Björn til að mynda bjartsýnn: „Ég tók ekki ákvörðun um að fara fram einn, ég var hvattur áfram af hundruðum, ég ákvað að svara kallinu, ekki vegna draums um eigin völd, hreint ekki, heldur vegna þess að mér fannst mér bera skylda til að láta á það reyna hvort maður eins og ég gæti orðið þjónn almennings á þingi á ögurstundinni sem fram undan er, tækifærið til breytinga er núna! [...] Ég tek alltaf allar áskoranir mjög alvarlega, ég brenn fyrir ástríðu hver sem verkin eru. Ég þakka öllum sem lagt hafa lið í baráttunni. Ef árangur næst annað kvöld er ég mjög bjartsýnn varðandi stóru kosninguna í haust, að tækifæri gefist með góðu fólki til að breyta landinu til hins betra, enda bentu ýmsir mér í gærkvöld á að ég væri að þeirra mati akkúrat með rétta bakgrunninn, akkúrat með réttu hugsunina fyrir framtíð Pírata og þar með landsins alls.“Mun ekki þramma undir fána Pírata áfram En, nú er komið annað hljóð í strokkinn, honum hefur snúist hugur: „Ég mun svífa burt frjáls eins og fuglinn með þá von í hjarta að pírötum gangi vel að breyta Íslandi til hins betra án þess að eiga þess kost að styðja þá í þeirri vegferð. Því miður bendir niðurstaða fyrsta pírataprófkjörs ársins 2016 (sem klíkunni lá mikið á að efna til og framkvæma í skjóli nætur í óþökk flestra utan héraðs) ekki til að þingmannsefnin hér fyrir norðan hafi góðar hugmyndir um lykil að árangri þegar almenningur er annars vegar,“ skrifar Björn Þorláksson meðal annars á Facebook-síðu sína.
Kosningar 2016 Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Strandveiðisjómaður lést Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Unglingsstúlka lést þegar hestur dró hana eftir jörðinni Erlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Fleiri fréttir Strandveiðisjómaður lést Deila um Suðurnesjalínu 2 fer beint í Hæstarétt Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Sjá meira