Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar frumsýna nýtt myndband á Vísi Stefán Árni Pálsson skrifar 12. júlí 2016 14:30 Skemmtilegt lag. vísir
Þar sem malbikið svífur mun ég dansa er titill lags sem kom út á samnefndri plötu Jónasar árið 2007. Það hljómar hér þessu splunkunýja myndbandi í nýrri útgáfu sem er lifandi upptaka Jónasar og Ritvéla hans frá því í tónleikaferð þeirra í október 2015, nánar tiltekið í Frystiklefanum á Rifi, Græna Hattinum og á Café Rósenberg. Síðar í þessum mánuði ætla Jónas og Ritvélarnar að leggjast í ferðalag þegar þau keyra hringinn í krinum landið og halda tónleika á 7 stöðum á 7 dögum. Miðasalan rauk af stað og er nú þegar búið að seljast upp á einhverja tónleikana, en viðkomustaðirnir eru þessir: Fjarðarborg á Borgarfirði eystri 22. júlí - Félagsheimilið Hvammstanga 23. júlí - Menningarhúsið Berg á Dalvík 24. júlí - Félagsheimilið Brúarás 25. júlí - Mosskógur í Mosfellsdal 26. jlí - Félagsheimilið Gunnarshólmi í Landeyjum 27. júlí - Félagsheimilið Flúðum 28. júlíJónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar eru annáluð fyrir lifandi flutning á lögum og textum Jónasar en hann hefur gefið út þrjár plötur og hafa fjölmörg lög af þeim hlotið verðskuldaða athygli og mörg ratað hátt á vinsældarlista landsins. Á tónleikunum verður hægt að kaupa nýútkomna plötu sem inniheldur öll vinsælustu lög Jónasar ásamt lifandi upptökum og áður óútgefnu efni, þar á meðal lagið sem hér heyrist.
Tónlist Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Fundu ástina á Domino's Lífið Hinsegin ást í loftinu Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira