Fótbolti

Oliver í Belfast: Þetta var slys og gerist ekki aftur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Íslenska landsliðið í fótbolta skipað leikmönnum U21 árs yngri mætir Norður-Írlandi í Belfast á morgun í mikilvægum leik í undankeppni EM 2017. Leikurinn hefst klukkan 18.00 að íslenskum tíma.

Strákarnir okkar eru í öðru sæti í riðlinum með tólf stig, tveimur stigum minna en Frakkar en eiga leik til góða. Efsta sæti riðilsins veiti þátttökurétt á EM en fjögur bestu liðin í öðru sæti mætast í umspili um tvö síðustu sætin.

Ísland er taplaust eftir sex leiki en missteig sig hrapalega gegn Norður-Írlandi á heimavelli þar sem það gerði 1-1 jafntefli þrátt fyrir að vera miklu betra liðið allan leikinn. Fyrirliðinn Oliver Sigurjónsson teku ekki í mál að það gerist aftur.

„Þetta var bara slys því við vorum mun betri. Þeir skora eftir fimm mínútur úr föstu leikatriði sem er mark sem íslenskt landslið á ekki að fá á sig,“ segir Oliver í viðtali við heimasíðu KSÍ.

„Við klúðruðum þremur til fjórum dauðafærum, þar á meðal í stöðunni einn á móti marki. Við ætlum „all in“ í þennan leik og ætlum ekki að láta það gerast aftur að tapa stigum.“

Íslenska liðið telur sig betra en það norðurírska og ætlar sér sigur sem er mikilvægur í baráttunni við Frakkana sem strákarnir mæta svo á þriðjudaginn.

„Okkur finnst við betri. Við erum flestir að spila í íslensku deildinni en sumir úti. Ég veit ekki hvar þessir norðurírsku gaurar spila en þeir eru betri en maður heldur. Samkvæmt okkar vitneskju þá teljum við okkur betri,“ segir Oliver.

„Við þurfum bara að halda í okkar gildi og vera skipulagðir og vinnusamir. Við þurfum að spila eftir okkar taktík því þá eru meiri líkur á að við vinnum. Ef við förum að spila einhvern Barcelona-fótbolta þá eru ekki miklar líkur á að við stýrum leiknum eins og við getum gert,“ segir Oliver Sigurjónsson.

Allt viðtalið má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×