Lífið

Kleinu­hringja­spáin sló öllum könnunum við

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fjölmargir vörðu nóttinni fyrir utan Dunkin Donuts þegar fyrsti staðurinn var opnaður á Laugavegi. Þeir fengu ársbirgðir fyrir biðina og því ólíklegt að þeir hafi verið gestir staðarins í vikunni.
Fjölmargir vörðu nóttinni fyrir utan Dunkin Donuts þegar fyrsti staðurinn var opnaður á Laugavegi. Þeir fengu ársbirgðir fyrir biðina og því ólíklegt að þeir hafi verið gestir staðarins í vikunni. vísir/pjetur
Nú þegar úrslitin í kosningum til Alþingis eru ljós er fróðlegt að bera niðurstöðuna saman við kannanir sem birtust í fjölmiðlum vikurnar fyrir stóra daginn, laugardaginn 29. október þegar landsmenn gengu til kosninga. 

Í ljós kemur að niðurstöður kosninganna voru því sem næst á pari við kaup á kleinuhringjum í litum flokkanna vikuna fyrir kosningar. Í þremur flokkum af sjö var „kleinuhringjaspáin“ betri en spá Gallup, fréttastofu 365, MMR og Félagsvísindastofnunar.


„Spá“ Dunkin' Donuts sem byggði á sölu kleinuhringja með merkjum flokkanna.
Langnæst í tilfelli XD

Fréttastofa 365 birti könnun fimmtudaginn 27. október um fylgi flokka og hið sama gerði Gallup, MMR og Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands föstudaginn 28. október. Kannanirnar voru heilt yfir á svipuðum nótum og munurinn á einstökum flokkum milli kannana á bilinu eitt til þrjú prósent.

Kleinuhringjafyrirtækið Dunkin’ Donuts seldi kleinuhringi með merkjum allra flokka sem voru í framboði til Alþingis síðustu dagana fyrir kosningar. Fyrirtækið tók saman sölutölur fyrir hringina og birti föstudaginn 28. október. Tölurnar voru nokkuð nærri lagi þeim sem birtust í fyrrnefndum könnunum.



Hins vegar, nú þegar niðurstaða er ljós, kemur á daginn að neytendum Dunkin’ Donuts tókst enn betur upp að spá fyrir um úrslitin en fyrrnefndum könnunum. Neytendur Dunkin’ voru í sérflokki þegar kom að því að spá fyrir um gengi Sjálfstæðisflokksins en þar munaði aðeins einu prósenti. Neytendur spáðu XD 28% fylgi en flokkurinn fékk 29%.


Umræddir kleinuhringir.
Á annað þúsund kleinuhringir

Kaupendur kleinuhringja voru líka næst úrslitunum í tilfelli Bjartrar framtíðar með 7% spá en flokkurinn fékk 7,2%. Pírötum var spáð 18% en flokkurinn fékk 14,5%. Aðrar kannanir spáðu Pírötum enn meira fylgi nema Gallup sem spáði 17,9% fylgi.

Dunkin’ Donuts fólkið var líka næst lagi í tilfelli Vinstri Grænna sem fengu 15,9% en kleinuhringjaspáin hljóðaði upp á 16%. Í tilfelli fjögurra flokka af sjö höfðu viðskiptavinir Dunkin' Donuts betur.

Sigurður Karlsson hjá Dunkin’ Donuts segir í samtali við Vísi að „spá“ þeirra hafi verið til gamans gerð. Hún miði við sölu á vel á annað þúsund kleinuhring kleinuhringjum en Sigurður muni ekki nákvæma sölutölu í svipinn.

Þó verði að taka með í reikninginn að kleinuhringir stóru flokkanna sjö, ef svo má að orði komast, fóru í sölu á mánudegi og minni flokkanna á þriðjudeginum. Sala fór fram í fimm útibúum.

Að neðan má sjá samanburð á síðustu spám í könnunum, „spá“ Dunkin’ Donuts og svo niðurstöðunni um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×