Lífið

„Græni liturinn er dálítið dularfullur“

Birgir Olgeirsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson, Smári McCarthy og Óttarr Proppé, öll í grænu.
Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson, Smári McCarthy og Óttarr Proppé, öll í grænu. Vísir
„Ég tók eftir þessu líka,“ segir Heiðar Jónsson snyrtir spurður út í val leiðtoga stjórnmálaflokkanna á grænum klæðnaði nú þegar þeir ræðast við vegna mögulegrar stjórnarmyndunar.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk í gær stjórnarmyndunarumboðið frá forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, og tók í kjölfarið á móti Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins, í ráðherrabústaðnum við Reykjavíkurtjörn í gær.

Heiðar Jónsson.Vísir/Stefán
Í morgun mætti Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, til fundar við Bjarna í ráðherrabústaðnum klædd í grænar buxur.

Bjarni sást skömmu síðar klæddur grænni peysu, sem og Smári McCarthy, þingmaður Pírata. Þá hefur grænn jakki Óttarrs Proppé, formanns Bjartar framtíðar, vakið mikla athygli.

Heiðar segist í samtali við Vísi hafa tekið eftir þessu litavali, en hann segir græna litinn vera í tísku nú í haust.

„Þetta er einn af litunum sem er inni og ég held að það hitti bara þannig á,“ segir Heiðar.

Hann segir Katrínu hafa notað þennan lit áður. „Þetta er því ekki nýtt hjá henni.“

Varðandi Óttarr, þá segir Heiðar þennan græna jakka vera af sama litarhætti og karrýguli jakkinn sem hann var áður svo þekktur fyrir að klæðast. „Þannig að hann er að halda sig í sínu. Þetta eru litir sem passa vel saman.“

Heiðar segist ekki muna til þess að hafa séð Bjarna Benediktsson áður í svona lit. „En hann er tískumógúll. Það væri alveg ráðlagt fyrir tískuherrana að hafa hann sem fyrirmynd. Hann fylgist mjög vel með.“

Grænn er litur náttúrunnar, getur táknað vöxt, samræmi, ferskleika og frjósemi og hefur sterka samsvörun við öryggi.

Heiðar bendir einnig á að það sé nokkuð merkilegt við græna litinn því hann sé í raun lykillitur. „Hann er hvorki heitur né kaldur, hann er bæði. Þannig að hann gefur ekki upp mikið, á jákvæðan máta. Græni liturinn er dálítið dularfullur. Hann er því eðlilegur við þessar aðstæður því hann talar ekki af sér.“


Tengdar fréttir

Hófst strax handa við að mynda ríkisstjórn

Formaður Sjálfstæðisflokksins ræðir mögulegt ríkisstjórnarsamstarf við alla formenn þeirra flokka sem eiga þingmenn á Alþingi. Forseti Íslands gefur formanninum nokkra daga áður en hann þarf að upplýsa um gang viðræðna.

Píratar funda með Bjarna

Píratarnir Einar Brynjólfsson, Birgitta Jónsdóttir og Smári McCarthy mættu til fundar við Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins í Ráðherrabústaðnum núna klukkan 13.

Katrín mætt til fundar við Bjarna

Bjarni boðaði hana á fund sinn nú klukkan 10 en hann fundaði með Sigurði Inga Jóhannssyni formanni Framsóknarflokksins síðdegis í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×