Sá eini rétti að mati mömmu 5. janúar 2017 11:00 Gylfi Þór Sigurðsson skoraði níu mörk eftir áramót og fram að vori og meira og minna hélt heilu liði nánast einn síns liðs uppi í ensku úrvalsdeildinni, erfiðustu deild heims. Hann var síðan frábær á EM þar sem strákarnir okkar heilluðu heimsbyggðina og hélt svo áfram að fara á kostum á Englandi út árið. Samt tókst fullt af fólki að verða alveg tryllt yfir því að hann var kjörinn Íþróttamaður ársins. Eins og við mátti búast voru stuðningsmenn, aðdáendur og velunnarar hinna sem voru „hlunnfarnir“ um þessi stærstu einstaklingsverðlaun íslensks íþróttalífs ósáttir. En þeir gleyma því að með orðum sínum setja þeir Gylfa og afrek hans niður, sem er í raun skammarlegt. Besservisserar af gamla skólanum voru svo hissa að þeir gátu vart orða bundist og létu alla vita af því. Efstu þrjú í kjörinu voru Gylfi, Hrafnhildur og Ólafía Þórunn. Þau sem vonuðust eftir sigri stúlknanna mögnuðu voru ósátt og er það skiljanlegt þótt óþarfi sé að gera lítið úr sigurvegaranum alveg eins og fótboltamenn gerðu í fyrra þegar Eygló vann en ekki Gylfi. En svo er fólk eins og móðir mín góð sem hélt með engu af þessum þremur. Hún bara trúir ekki að Aron Einar Gunnarsson hafi ekki fengið útnefninguna að þessu sinni. Gefum mömmu orðið við eldhúsborðið: „Aron er búinn að vera fyrirliði íslenska liðsins og fyrirliði alls Íslands. Hann stóð frammi fyrir liðinu á EM. Hann er búinn að vera þvílík landkynning og stolt þjóðarinnar. Mikið svakalega getur þessi þjóð verið vanþakklát.“ Mamma gleymdi í smá stund að það er sonur hennar og 23 aðrir íþróttafréttamenn sem kusu, en ekki þjóðin. Það stóð ekki á svari: „Hvað er að ykkur?!“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson Skoðun