Ívari finnst umfjöllunin um skíðaferðina ósanngjörn: Eins og ég sé glæpamaður að flýja afbrot 26. febrúar 2017 20:30 Á skíðum skemmtir Ívar sér. Vísir/Eyþór
Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka, skrifar í kvöld pistil á Facebook-síðu sína þar sem hann gagnrýnir þá umfjöllun sem skíðaferð hann er í erlendis hefur fengið á fjölmiðlum undanfarna daga. Eins og Vísir fjallaði um fyrir helgi fór Ívar í skíðaferð með fjölskyldunni um helgina en tímasetningin á ferðinni vekur athygli þar sem Haukar eiga framundan virkilega mikilvægan leik gegn Snæfelli í Dominos-deild karla. Ívar staðfestir það í pistlinum að hann verði ekki með liðinu á föstudaginn og að hann sé erlendis á skíðum.Sjá einnig:Óvíst hvort Ívar stýrir Haukum gegn Snæfelli vegna skíðaferðar Gæti farið svo að þessi leikur skeri út um hvort liðið haldi sæti sínu í deild þeirra bestu á næsta tímabili en Haukar einfaldlega verða að vinna þennan leik. Sérfræðingar Körfuboltakvölds voru einróma sammála um að þessi tímasetning væri afar sérkennileg og furðuðu sig á að þjálfari myndi taka svona ákvörðun en þá umræðu má sjá hér. Sjá einnig: Körfuboltakvöld: Framlengingin | „Þetta er gjörsamlega galin ákvörðun hjá Ívari“ Ívar svarar fyrir þetta í pistlinum þar sem hann segist hafa pantað þessa ferð síðasta sumar þar sem hann myndi aðeins missa af einum heimaleik sem væri ekki í úrslitakeppni né á bikarhelgi en leikurinn sé mun mikilvægari en búist var við. Segir hann einnig að leikmenn hafi vitað af þessu og að liðið sé í góðum höndum hjá aðstoðarþjálfurum liðsins en að allt sé rétt upp sett og hann sé viss um að leikmenn komi af fullum krafti inn í leikinn og vinni. Segist hann vera að fara í ferð sem sé búin að vera í áætlun undanfarin ár en aldrei gefist tími í fyrr en ákveðið var að kaupa ferðina. Öll frí undanfarna áratugi hafi verið skipulögð í kringum körfuboltann og loksins þegar hann láti persónulega hagsmuni ganga fyrir sé það stórmál. Sakar hann Körfuboltakvöld um að blása upp umræðuna og eyða heilum þætti til umfjöllunar um þetta atvik og honum sé gert að líða eins og glæpamanni sem sé að flýja eitthvað afbrot sem hann hefur gert af sér.
Dominos-deild karla Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira