Jeppasýning hjá Öskju Finnur Thorlacius skrifar 23. febrúar 2017 10:01 Mercedes Benz GLE.
Bílaumboðið Askja stendur fyrir jeppasýningu nk. laugardag 25. febrúar klukkan 12-16. Þar verða sýndir Mercedes-Benz og Kia jeppar og jepplingar af öllum og stæðrum og gerðum. Að auki fylgir veglegur kaupauki öllum staðfestum kaupum á jeppum þennan dag. Úr Kia deildinni verða sýndir Kia Sorento Arctic Edition og Kia Sportage sem báðir hafa verið mjög vinsælir. Úr hinni breiðu Mercedes-Benz línu verða til sýnis GLA, GLC, GLE og GLS. Þá verður hinn magnaði G-Class jeppi einnig sýndur sem og Coupé útfærslurnar af GLC og GLE. Boðið verður upp á 25% afslátt af öllum aukahlutum í Öskju á meðan sýningunni stendur. ,,Vetur konungur hefur verið að láta vita af sér þessa dagana með snjókomu eftir óvenju mildan vetur og það er því tilvalið að halda jeppasýningu. Mercedes-Benz sportjepparnir eru búnir hinu hátæknivædda 4MATIC fjórhjóladrifi sem elskar snjó og íslenskar aðstæður. Þetta er falleg flóra Mercedes-Benz jepplinga og jeppa allt frá hinum netta GLA upp í hina stóru og stæðilegu GLE, GLS og G-Class," segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz fólksbíla hjá Öskju. ,,Við erum afar stolt af sportjeppum Kia og þeir hafa verið að standa sig gríðarlega vel við íslenskar aðstæður. Það er sérlega gaman að bjóða upp á Kia Sorento Arctic Edition sem er breytt útfærsla af hinum hefðbundna Sorento. Hann er upphækkaður, með lengda dempara, og kemur á sérstökum 32” heilsársdekkjum. Bíllinn er 200 hestöfl, með 24 cm veghæð og hefur 2ja tonna dráttargetu. Kia Sorento Arctic Edition er fáanlegur 7 manna. Þegar Kia Sorento er breytt fyrir 32 tommu dekk í þessari útfærslu er hann eingöngu hækkaður á fjöðrun. Bíllinn heldur því upprunalegum aksturseiginleikum sínum en hærra verður undir lægsta punkt," segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.Kia Sorento Arctic Edition.
Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent