Nýr SsangYong Rexton Finnur Thorlacius skrifar 24. mars 2017 10:33 Ný kynslóð SsangYong Rexton.
SsangYong mun sýna þessa nýju kynslóð Rexton jeppans í næstu viku á bílasýningunni Seoul Motor Show. Þessi bíll verður flaggskip jeppa og jepplingalínu SsangYong og víst er að þarna fer mun fríðari bíll en núverandi gerð Rexton. Flott útlit bílsins hefur kannski með það að gera að Mahindra & Mahindra, móðurfyrirtæki SsangYong keypti árið 2015 Pininfarina hönnunarhúsið ítalska og víst má telja að fingur þeirra hafi snert teikniborðið við hönnun þessa nýja bíls. Bíllinn verður 4,85 metrar að lengd, 1,92 m breiður og 1,8 m hár og með 2,86 m milli öxla. Bíllinn mun bæði fást með bensín- og dísilvélum og hann mun bæði fást fjórhjóladrifinn og framhjóladrifinn. Þetta verður fyrsti bíll SsangYong sem verður með nýjum Quad-Frame undirvagni með miklu hástyrktarstáli. Það mun bæði styrkja bílinn mikið en létta hann í leiðinni. Notkun hástyrktarstáls verður 63% af heildarundirbyggingu bílsins. Sala nýs Rxton mun hefjast á fyrri helmingi ársins í heimalandinu, en á seinni helmingi ársins á öðrum mörkuðum.
Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent