Jóni Arnóri blæddi í baráttunni við Keflavík | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. mars 2017 12:30
Jón Arnór Stefánsson, leikmaður KR, fékk þungt högg á andlitið eftir aðeins tvær og hálfa mínútu í fyrstu undanúrslitaviðureign KR og Keflavíkur í DHL-höllinni í undanúrslitum Domino´s-deildar karla í körfubolta. KR vann leikinn örugglega. Jón Arnór sótti inn á teiginn hjá Keflavík þar sem Guðmundur Jónsson, leikmaður gestaliðsins, stökk upp á móti Jóni og rak olnbogann í andlitið á landsliðsmanninum með þeim afleiðingum að Jón Arnór steinlá. Það byrjaði að blæða hressilega úr Jóni sem þurfti að fá aðhlynningu sjúkraþjálfara KR. Ekkert var dæmt á atvikið og fór Keflavík í sókn en KR var 5-2 yfir þegar þetta gerðist. Jón Arnór skoraði tíu stig í leiknum auk þess sem hann gaf fimm stoðsendingar og tók þrjú fráköst. Alls skoruðu sex leikmenn KR tíu stig eða meira í sannfærandi 90-71 sigri Íslandsmeistaranna. Liðin mætast næst í Sláturhúsinu í Keflavík á mánudagskvöldið þar sem Suðurnesjamenn verða að vinna ætli þeir ekki að lenda 2-0 undir.
Dominos-deild karla Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Sjá meira