Furman tapaði í nótt í síðasta leik Kristófers fyrir skólann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2017 11:00 Kristófer Acox. vísir/bára dröfn
Kristófer Acox spilaði í nótt síðasta leikinn á tímabilinu með Furman-háskólanum í bandaríska háskólakörfuboltanum en liðið datt þá út í undanúrslitum CollegeInsider.com úrslitakeppninnar (CIT). Þetta eykur líkurnar á því að Kristófer Acox spili með KR í úrslitakeppninni í ár en KR-ingar hefja leik í undanúrslitunum í DHL-höllinni í kvöld. Furman tapaði nótt með sextán stigum á móti Saint Peter's, 77-51, eftir að hafa verið átján stigum undir í hálfleik, 37-19. Skelfileg byrjun fór með leikinn en Saint Peter's liðið skoraði fimmtán fyrstu stig leiksins. Kristófer Acox skoraði fyrsta stig Furman á vítalínunni eftir sjö og hálfa mínútu. Kristófer Acox átti ágætan leik en hann skoraði 11 stig, tók 7 fráköst og stal 2 boltum. Kristófer hitti úr 5 af 8 skotum sínum. Kristófer Acox setti nýtt skólamet með því að nýta 62,8 prósent skota sinna á tímabilinu og hann er ennfremur sá leikmaður í sögu skólans sem hefur nýtt skotin sín best eða 61,3 prósent. Kristófer var með 13, 0 stig og 7,7 fráköst að meðaltali á lokaári sínu sem er langbesti árangur hans í skólanum. Hann hafði mest áður skorað 8,9 stig (2015-16) og tekið 7,5 fráköst (2014-15) að meðaltali á einu tímabili með skólanum. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, hefur sagt að KR-ingar hafi skoðað þann möguleika að Kristófer spili með KR í úrslitakeppninni en það hefur ekki verið staðfest hvort að Kristófer muni hjálpa KR-ingum að vinna Íslandsmeistaratitilinn fjórða árið í röð. Kristófer Acox spilaði fjögur ár með Furman-skólanum og skoraði alls 1051 stig og tók 780 fráköst í 118 leikjum sínum fyrir skólann.Slow Start Costly As @FurmanHoops Falls At Saint Peter's In CIT Semifinals, 77-51 https://t.co/JlBSulXa61 #Furman pic.twitter.com/x3EbvKZ5nC— Furman Paladins (@FurmanPaladins) March 30, 2017
Dominos-deild karla Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira