Þegar veðrið breytir öllu í veiði Karl Lúðvíksson skrifar 18. maí 2017 08:51 Tekist á við urriða í Minnivallalæk í glampandi sól sem gerir veiðina þar oft erfiða. Mynd: www.strengir.is
Það vita það allir veiðimenn að veður hefur gífurlega mikið að segja í veiði og það sem hefur oft úrslitaáhrif á þð hvort fiskur sé í töku eða ekki getur stundum verið bara smá breyting á aðstæðum. Urriði og bleikja finnst mörgum veiðimönnum mun næmari fyrir veðrabreytingum heldur en t.d. lax og það getur eins verið mjög mismunandi eftir veiðisvæðum hvernig veður gefur best. Til að mynda veiðist bleikja oft best í Soginu í glampandi sól en þannig veður slekkur t.d. yfirleitt á tökunni í Elliðavatni. Þar er aftur á móti oft gott að veiða í rigningu og góðri gjólu sem gerir veiði í Sléttuhlíðarvatni erfiða og svona mætti lengi telja. En af skemmtilegri ám til að kasta fyrir stóra urriða er Minnivallalækur og þar er óhætt að segja að smá breyting á aðstæðum geti breytt öllu. Elías Pétur Viðfjörð var að koma úr Minnivallalæk og þar fann hann og félagar hans vel fyrir því hvað smá breyting í veðri gerir oft mikið. "Við ve iddum eina eftirmiðdegisvakt og til að byrja með var lítið að gerast enda rok, rigning og leiðindaveður, til að mynda sáum við ekki, né urðum varir, við fiska í Húsbreiðu eða Stöðvarhyl. Við ákváðum að reyna að veiða sem flesta staði á þessum stutta tíma. Við fórum næst í Viðarhólma þar sem við lentum í því sama, ekkert líf. Skyndilega stytti upp og það lægði einnig og upp skaust gott klak af rykmý. Þá fóru drekarnir á stjá. Við settum í stóran fisk í Viðarhólma sem var slatta yfir 70cm, líklega um 10 pund en hann datt af eftir um 6-7mín baráttu. Sá tók klinkhammer #16. Þaðan fórum við í Djúphyl þar sem einnig voru fiskar í yfirborðstökum. Þar kom á land fiskurinn á myndinni að ofan en hann tók straumflugu eftir að hafa komið upp í þurrfluguna nokkrum sinnum. Í lok kvöldsins fórum við aftur i Stöðvarhylinn sem nú iðaði af lífi. Við lönduðum þar tveimur flottum fiskum og misstum tvo aðra. Sýnir hvað veðrið getur skipt miklu máli. Hyljir sem áður virkuðu dauðir geta allt í einu farið í gang!"
Mest lesið RISE fluguveiði kvikmyndahátið hefst í dag Veiði Aukning í netaveiði 2010 Veiði Norðurá og Hofsá komnar yfir 1.000 laxa Veiði 97 laxar komnir úr Elliðaánum í morgun Veiði 20-30% verðlækkun í Breiðdalsá Veiði Stóra Laxá að ná 400 löxum Veiði Stóra Laxá komin í 100 laxa Veiði Leirvogsá og Úlfarsá fóru vel af stað Veiði Stígandi í veiðinni í Jöklu Veiði Eltast við allt að 60 punda laxa Veiði