Hreinsun Elliðaánna fer fram næsta þriðjudag Karl Lúðvíksson skrifar 12. júní 2017 09:15 Hreinsun Elliðaánna fer fram á þriðjudaginn. Hér er tekist á við lax í Teljarastreng. Mynd: SVFR
Hin árlega hreinsun Elliðaánna fer fram á morgun þriðjudag, 13. júní og hefst verkefnið á því að viljugir félagsmenn í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur og aðrir velunnarar Elliðaánna mæta í veiðihúsið í Elliðaárdal klukkan 17.00 þennan dag. Gert er ráð fyrir að hreinsun verði lokið um kl. 20.00, en þá verður boðið upp á létta hressingu við veiðihúsið fyrir þá sem vilja. Við veiðihúsið sem flestir kannast við, verður verkefnum útdeilt og mönnum og konum verða falin hreinsun á tilteknum hlutum Elliðaánna, en víða er að finna rusl og annan óþrifnað í og með ánum og er verkefni dagsins að gera umhverfi ánna eins snyrtilegt og kostur er og SVFR til sóma í hvívetna. Undanfarin ár hafa margir hlýtt kalli SVFR um að leggja gjörva hönd á plóg við þetta tækifæri og hafa ekki séð eftir því. Enda er það almannarómur að þeir sem taka þátt í þessu átaki hafi ekki borið skarðan hlut frá borði í veiði í Elliðaánum í framhaldinu, enda eru það staðkunnugir menn sem fara fyrir hreinsunarflokkunum og miðla gjarnan af visku sinni og reynslu við þetta tækifæri. Öllum er frjálst að leggja hönd á plóginn og eru þátttakendur beðnir um að mæta við veiðihús Elliðaánna kl. 17.00 þriðjudaginn 13. júní nk. Þar verður skipt liði og fólki skipað til verka og áin og næsta umhverfi hennar hreinsað af rusli og öðrum óþrifnaði. Þátttakendur eru hvattir til þess að vera í klofstígvélum eða vöðlum, þar sem hirða þarf rusl úr árfarveginum – og jafnframt að vera klæddir í samræmi við veður að öðru leyti. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hvetur félagsmenn sína sem og aðra velunnara Elliðaánna til þátttöku í hreinsunarátakinu.
Mest lesið Fluga dagsins: Skæð laxafluga Veiði 30 laxa opnun Þverár og Kjarrár í gær Veiði Rjúpnahelgi framundan Veiði Nóg af laxi en aðstæður krefjandi Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði 48 laxa holl í Kjarrá Veiði Upptaka af erindi um lax og virkjanir Veiði Nokkrir risar úr Affallinu Veiði Lygilegur veiðidagur feðga í Hofsá Veiði Ekki fyrir viðkvæma: Kind skelfilega illa leikin eftir dýrbít í Lundarreykjadal Veiði