Porsche 911 og Macan skora hæst Finnur Thorlacius skrifar 29. júní 2017 10:48 Sportjeppinn Macan skorar hæst hjá bandarískum neytendum í þriðja skipti í röð. „
Topp upplifun og ánægja viðskiptavinanna er aðal markmið okkar og því líður okkur best í fyrsta sæti,“ var haft eftir Oliver Blume, hjá Porsche, þegar niðurstaða lá fyrir í hinni árlegu úttekt bandaríska markaðsrannsóknarfyrirtækisins J.D. Power and Associates nú á dögunum. Til grundvallar valinu á hverju ári liggur rannsókn, sem snýst um úttekt á áreiðanleika og gæðum bíla á Bandaríkjamarkaði. Hún hefur verið framkvæmd af sama fyrirtæki, samfellt í 31 ár. Könnunin er mjög viðamikil og að þessu sinni komu 77.000 bandarískir bílaeigendur að valinu. Lagðar eru fyrir spurningar sem lúta að hvorki fleiri né færri en 233 atriðum í rekstri bílsins. Í pottinum voru 243 bíltegundir frá 33 framleiðendum. Gleðilegasta niðurstaðan fyrir Porsche að þessu sinni er sú að í sjötta skipti í röð, hlýtur Porsche 911 fyrsta sætið í sínum flokki. Þá festir Porsche Macan sportjeppinn sig enn frekar í sessi í könnuninni og trónir á toppnum í þriðja skipti í röð. Gögn sem fengust við samantekt rannsóknargagna gáfu J.D. Power and Associates einnig tækifæri til að meta bílasmiðjurnar sjálfar. Þar tóku bílasmiðjur Porsche í Leipzig, þar sem Cayenne, Macan og Panamera eru framleiddir, gull medalíuna. „Útkoman og velgengni Porsche, nú sem fyrr, byggir alfarið á ánægju kaupendanna,“ segir Oliver Blume. „Þessar viðurkenningar eru staðfesting á því að okkar þróunarvinna og ströngu gæða- og hönnunarstaðlar eru að skila sér alla leið til kaupenda og birtast í einstakri akstursupplifun og ánægju. Til þess er líka leikurinn gerður.“
Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent