Gömul próf Pálmar Ragnarsson skrifar 17. júlí 2017 09:00 Háskólakerfið á Íslandi á við eilítið vandamál að stríða. Í of mörgum námskeiðum eru sömu prófin lögð fyrir nemendur ár eftir ár. Þeir nemendur sem verða sér úti um eldri prófin frá samnemendum eða prófbúðum eru því mun betur staddir en þeir nemendur sem gera það ekki og kjósa að læra allt námsefnið. Til að komast í gegnum ákveðin fög er það nefnilega talin góð og gild aðferð að læra bara svörin við prófinu frá því í fyrra í stað þess að læra allt efnið sem er til kennslu. Jafnvel bara frekar skynsamlegt þegar það er gefið að þú munir ljúka námskeiðinu með hærri einkunn og mun minni fyrirhöfn. Það slæma er þó að úr þessu námskeiði útskrifast nemandi með litla þekkingu á námsefninu. Öllu verra er að þetta mismunar nemendum. Nemandi með litla þekkingu á efninu og gamalt próf fær líklega hærri einkunn en nemandi með mikla þekkingu á efninu en ekkert próf. Þeir nemendur sem þekkja fleiri eru síðan líklegri til að fá gömlu prófin send sem dreifast hratt á milli samnemenda. Mér þykir frábært að nemendur geti fengið að sjá eldri próf frá kennurum til viðmiðunar og geti þannig undirbúið sig fyrir álíka spurningar. En þegar nákvæmlega sömu spurningar með nákvæmlega sömu svörum koma ár eftir ár en aðeins hluti nemenda hefur þau undir höndum er kerfið ekki í lagi. Þó er mikilvægt að taka það fram að í fullt af námskeiðum er þetta ekki svona og fjölmargir harðduglegir nemendur fara í gegnum námið sitt með því að tileinka sér allt námsefnið. En þannig ætti það að vera í öllum námskeiðum, alltaf. Í hvert sinn sem ég heyri "topp 250 í heiminum" hugsa ég um gömlu prófin og glotti út í annað. Ég hvet stjórnendur Háskóla Íslands og annarra háskóla til að skoða málið og taka á þessu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Pálmar Ragnarsson Mest lesið Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun Að mása sig hása til að tefja Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda Ingibjörg Isaksen Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Sparnaðarráð fyrir ferðalagið Svandís Edda Jónudóttir Skoðun Samráðsdagar á Kjalarnesi Ævar Harðarson Skoðun Að mása eða fara í golf Jón Pétur Zimsen Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun Leiðréttum kerfisbundið misrétti Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun