Var nýbúin að skoða mynd af Louise þegar hún gekk inn í Lyfju Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. júlí 2017 11:30 Louise Soreda er fædd árið 1995. Hún vissi ekki að verið væri að leita að henni.
Starfsmaður í Lyfju á Selfossi var nýbúin að skoða mynd af Louise Soreda í fjölmiðlum þegar hún stóð allt í einu fyrir framan hana í versluninni. Víðtæk leit hafði staðið yfir að henni í rúman sólarhring eða frá því Lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir henni á miðvikudagsmorgun. Louise kom til landsins þann 5. júlí en það var mynd af henni í öryggismyndavél í flugstöðinni í Keflavík sem varð til þess að fyrrnefndur starfsmaður Lyfju kom auga á hana seinni part dags í gær. Louise hefur verið á ferðalagi um Suðurland í félagi við franskan mann sem var einmitt með henni þegar hún átti leið um Selfoss í gær. Voru þau meðal annars í Þórsmörk. Louise er meðal annars búin að sækja Þórsmörk heim. Myndin er af skála Ferðafélags Íslands í Langadal.Vísir/Vilhelm Starfsmaðurinn ræddi ekki við Louise heldur hringdi í lögreglu og lét vita að sú franska hefði komið í verslunina. Í kjölfarið hafði lögregla uppi á henni á gangi um bæinn. Lögreglumaður á Selfossi segir þau hafa verið afar geðug, rætt við lögreglu og í framhaldinu farið sína leið. Fjölskylda Louise hafði áhyggjur af henni þar sem hún fór til Íslands án þess að láta þau vita. Jón Halldór Sigurðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir í samtali við fréttastofu að ábendingar frá almenningi hafi skipt hundruðum og að lokum barst ein, frá starfsmanni Lyfju, sem lokaði málinu. Louise hafi rætt við fjölskyldu sína í Frakklandi og von sé á meðlimum hennar til landsins. „Mér skilst að við séum að fá fjölskylduna hingað upp og þau ætli að taka ferðalag hérna saman í kjölfarið á þessu,“ segir Jón Halldór.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira