Upp úr sauð á Miklubraut milli vagnstjóra Strætó og ökumanns jeppa Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. júlí 2017 11:00
Mikil læti voru á strætóstoppistöð sunnanmegin Miklubrautar á ellefta tímanum í morgun eftir að strætisvagn kom að stoppistöðinni. Við blasti hvítur jeppi með neyðarljósin á. Var jeppinn staðsettur aftast í útskotinu sem hindraði aðkomu vagnsins sem var leið eitt. Blaðamaður varð vitni að síðari hluta látanna þar sem strætóbílstjórinn lá á flautunni með hléum inn á milli. Eftir nokkrar mínútur ákvað strætóbílstjórinn að bakka vagninum og aka í kringum jeppann og að stoppistöðinni þar sem farþegar biðu eftir að hafa orðið vitni að látunum á undan.Vondur dagur varð verri Arnar Þór, bílstjóri hvíta jeppans, var að ræða málin símleiðis við lögregluna þegar blaðamaður bankaði á rúðuna. Hann útskýrði að hann væri einfaldlega bensínlaus. „Ég var að þrjóskast niðri í bæ,“ segir Arnar Þór sem hafði stefnt á bensínstöðina á Miklubraut við Kringluna. Hann hafi vonast til að ná á bensínstöðina en droparnir klárast nokkrum metrum of snemma. „Strætóin kemur fyrir aftan mig og hann flautar, hangir á flautinni í tuttugu mínútur.“ Arnar Þór segist hafa þrisvar sinnum farið úr bíl sínum og bent vagnstjóranum á að hann gæti alveg ekið framhjá sér. Til þess hefði vagninn þurft að bakka lítið eitt. „Hann svaraði, líklegast á pólsku, og var alveg harður á því að bíllinn minn ætti ekki að vera hérna. Ég ætti að töfra hann í burtu,“ segir Arnar Þór.Gaf sig loksins eftir hótun Að lokum hafi hann verið orðinn svo þreyttur á látunum og ókurteisinni að hann hafi gert nokkuð sem hann væri ekki stoltur af. Hann greip í verkfæri, parketsléttara, og sýndi honum til að gefa til kynna að hann væri orðinn langþreyttur á látunum. Nóg væri að vera bensínlaus á vondum stað en að þurfa að hafa vagnstjóra flautandi fyrir aftan sig í lengri tíma. „Hann hafði hangið á flautunni, ég er í smíðavinnu og þetta er búinn að vera erfiður vinnudagur, mánudagar eru erfiðir. Ég hafði farið út þrisvar að ræða við hann, þá er hann kominn út um gluggann að gefa mér einhver merki. Þá tók ég góðan parketsléttara, spurði hvort hann ætlaði ekki að hætta þessu. Ég þurfti að taka þetta upp til að hann bakkaði loksins og fór í kringum,“ segir Arnar Þór og sýnir blaðamanni parketslíparann sem minnir blaðamann á bílsköfu. Ekki reyndist mikill vandi fyrir vagnstjórann að bakka vagninum nokkra metra og aka fram fyrir sem að varð niðurstaðan að lokum.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Sjá meira