Veiddi stórlax í Aðaldal rúmlega níræð að aldri Jakob Bjarnar skrifar 24. júlí 2017 15:18 Lilla er grjótharður veiðimaður að sögn Bubba Morthens, og merkileg kona en ýmsa helstu drætti 20. aldarinnar má lesa í lífshlaup hennar. „
Ég vil frekar veiða einn stóran en marga litla,“ segir Lilla Rowcliffe í samtali við blaðamann Vísis. Lilla Rowcliffe er á 92. aldursári sínu og hefur verið við veiðar í Laxá í Aðaldal, Nessvæðinu, undanfarna daga. Hún er nú á heimleið en Lilla hefur veitt í Aðaldalnum undanfarin tæp þrjátíu árin eða svo. Hún segist upphaflega hafa komið hingað sem gestur í fylgd vinar síns. Þau fóru þá í Hofsá. Seinna kom hún svo í Aðaldalinn og segist taka Laxá í Aðaldal fram yfir flestar aðrar laxveiðiár. „Hún er algerlega einstök,“ segir Lilla. En, hún er nú með barnabarn sitt með sér og segir það sérstaklega ánægjulegt að kynna Ísland fyrir því.Laxveiðin með ólíkindum í fyrraVegna sérstakra aðstæðna í ánni, eins og nánar verður komið að hér á eftir, setti Lilla Rowcliffe ekki í marga fiska núna. Hún landaði einum 90 sentímetra en setti í tvo aðra. Annað var uppi á teningnum í fyrra þegar hún dró 15 stórlaxa á land. Hún segist aldrei hafa veitt eins marga laxa á eins stuttum tíma og þá. Stórlaxaárið á Íslandi í fyrra var sannarlega ótrúlegt.Lilla með lax á og heldur öruggum höndum um tvíhenduna og hjólið, sem er bremsulaust.„Ég kem örugglega aftur að ári. Hér er alltaf jafn stórkostlegt að dvelja við veiðar,“ segir Lilla. „Og maður veit aldrei þegar veiðar eru annars vegar hvernig árar. Kannski lendi ég í eins mikilli veiði þá og í fyrra. Nú var hins vegar vatnið hlýrra en loftið.“ En, mikil hlýindi hafa verið á Norðausturlandi undanfarna daga og þó flestir þar um slóðir fagni því þá er það ekki ákjósanlegt veiðiveður.Heldur í beltið svo hún berist ekki út með straumnumLilla Rowcliffe er með þekktari laxveiðikonum heims og hún hefur farið um heim allan til að veiða lax. „Ég hef komið víða á stórkostlega staði til veiða.“ Hún segist ekki fara eins víða núna, einfaldlega vegna þess að það séu viðsjárverðir tímar bæði sé litið til mengunar og svo stríðsástands. Hún segist til dæmis hafa um tíma farið til Mongólíu til að veiða en það sé ekki óhætt, þangað leiti Kínverjar nú gráir fyrir járnum. Lilla hóf að stunda laxveiðar eftir að hún missti eiginmann sinn rétt rúmlega fimmtug. Í Aðaldal hefur hún ávallt haft sama leiðsögumanninn, Árna Pétur Hilmarsson, sem var á unglingsaldri þegar hann fékk það hlutverk að lóðsa hana um Aðaldalinn. Það er greinilega mikil væntumþykja þeirra á milli og Lilla hlær þegar hún lýsir því að hann þurfi að halda í belti sitt svo straumurinn hrífi hana ekki með sér út í á.Laxá í Aðaldal gintær nú um stundirÁrni Pétur segir hana sannarlega magnaða konu en blaðamaður Vísis ræddi við þau á leið út á flugvöll. „Þetta var erfitt hjá okkur núna. Við settum í þrjá og hún landaði einum. Það er rosalega tregt,“ segir Árni Pétur sem lýsir aðstæðum í Laxá í Aðaldal. „Áin er svo heit og tær og svo er hún lág í vatni. Hún hefur ekki verið svona tær í 40 ár og fiskurinn flýr ofan í dýpið og erfitt að eiga við hann. Hann er ekki á sínum hefðbundnu slóðum.“Allt kengbogið enda er stórlax á.Árni Pétur vitnar í nafna sinn Einarsson sem rekur rannsóknarstofu við Mývatn. Hann segir að árin hreinsi sig á áratuga fresti og þá er hún tær eins og ginglas. „Nú sér botninn lengst útí. Hún er yfirleitt aðeins grænleit en ekki núna.“ Bubbi Morthens er á leiðinni í Aðaldalinn á fimmtudaginn næstkomandi og hann er bjartsýnn á að þá muni hafa kólnað og áin taki við sér, en Bubbi setti persónulegt met í fyrra, hann landaði fjölda laxa sem voru yfir 20 pund. Einmitt í Laxá í Aðaldal sem hann segir ána með stórum staf og greini. Bubbi er ágætur vinur Lillu Rowcliffe sem er með auðugustu konum heims en Bubbi lýsir ævintýralegu lífshlaupi hennar í bók sinni Áin, sem fjallar um Laxá í Aðaldal.Tengist mörgum helstu atburðum 20. aldarinnar„Jájá, við erum ágætis vinir,“ segir Bubbi. Og spurður hvernig hann myndi lýsa henni svarar hann af bragði: „Spartverji.“Já?„Já, hún grjóthörð. Hún kastar sjálf, kastar vel ennþá, 92 ára. Notar ekki bremsu á hjólinu heldur glímir við laxinn með höndunum. Hún er naumhyggjumanneskja í mataræði. Og hún hefur sínar skoðanir. Og sína lífssýn; skemmtileg og ljóngáfuð. Og eldklár veiðikona og hefur sett met víðsvegar um heiminn í lax- og fluguveiði. Dásamleg kona. Fyrirmynd okkar allra hvað hörku og dugnað við veiðarnar varðar. Hún er á pari við þá bestu. En, hún skorar hærra en flestir aðrir sem ég þekki með aga og hörku. Þar kemst enginn karlmaður í hálfkvisti við hana,“ segir Bubbi og fer hvergi leynt með aðdáun sína á þessari vinkonu sinni. Hann segir lífshlaup hennar ævintýralegt, minni helst á Munchausen eða Zelig eftir Woody Allen. Það megi lesa mannkynssögu 20. aldarinnar í lífshlaupi hennar: „Hún sat í tvö kvöld og sagði mér ævisögu sína. Hvort Raspútín var ekki vinur mömmu hennar! Halló! Þetta er alveg geggjað.“Faðirinn studdi Hitler og nasistanaEinar Falur Ingólfsson, blaðamaður, ljósmyndari og veiðimaður tók viðtal við Lillu fyrir Morgunblaðið sem birtist árið 2007 og þar er komið inn á þetta, að hún hafi alist upp við mikla auðlegð. Sir Henri Deterding var faðir hennar, annar stofandi og aðaleigandi Royal Dutch – Shell olíufélagsins og talinn efnaðasti maður heims á sínum tíma. Móðir hennar var Lydia Pavlovna Koudoyarov, rússnesk og hafði verið við rússnesku keisarahirðina eftir aldamótin. Móðirin var eitt helsta samkvæmisljón í London. „Hún var mjög glæsileg kona en vonlaus móðir, sú versta,“ segir Lilla Einari Fal og glottir.Lilla var með barnabarni sínu við veiðar í Aðaldalnum og segir það einstaklega ánægjulegt að kynna Ísland fyrir því. Og það ætlar hún að gera að ári en hún á sex börn og sautján barnabörn.Þegar faðir hennar féll frá voru Lilla og systir hennar Olga í skóla í Þýskalandi en Sir Deterding hafði þá kvænst þýskum ritara sínum og vann með nasistum, hann var einlægur hatursmaður kommúnista og studdi kosningabaráttu Hitlers. Hvort Lilla var ekki bara viðstödd innsetninguna þegar Hitler varð kanslari? Hálfbróðir stúlknanna tekur þær með sér yfir til Englands, þar sem þær voru aldar upp að miklu leyti hjá fjarskyldum ættingjum og í stórum heimavistarskólum.Fann lífsneistann aftur í veiðinniEn, svo gripið sé beint niður í frásögn Einars Fals: „Þegar skólagöngu Lillu lauk, í miðri síðari heimsstyrjöldinni, starfaði hún sem aðstoðarkona fallhlífarhermanna, meðal annars í Orkneyjum, og sá um að brjóta saman fallhlífar. Eftir stríðið giftist hún síðan þeim fyrsta af þremur eiginmönnum sínum. „Hann var svo leiðinlegur að við skildum,“ segir hún hlæjandi. Eiginmennirnir urðu tveir til en báðir létust, og það var henni mikil raun. Þegar Lilla var um fimmtugt lést Olga systir hennar einnig af slysförum, en þær voru mjög nánar. „Ég missti því á nokkrum árum þrjá ástvini, það var erfitt og mér leið mjög illa á þeim tíma,“ segir Lilla. Það var þá sem hún byrjaði að veiða, og svo er að heyra að veiðin hafi hjálpað þessari lífsglöðu konu að finna lífsneistann að nýju.“ Einar Falur lætur þess getið að Lilla Rowcliffe eigi sex börn og sautján barnabörn.Meðfylgjandi myndir eru birtar með góðfúslegu leyfi Árna Péturs.
Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Innlent Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Innlent Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Innlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Innlent Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Einar Geir oddviti Miðflokks í Hafnarfirði Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Hádegisfréttir Bylgjunnar: Aðalspurningin hvort fleiri blandist inn í átökin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Sjá meira