Grunaður um kynferðisbrot gagnvart yngri bróður Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. ágúst 2017 17:56
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi ákvörðun Lögreglustjórans í Vestmannaeyjum frá 26. júlí þess efnis að lögráða piltur á menntaskólaaldri skuli sæta nálgunarbanni í þrjá mánuði á meðan kynferðisbrot hans gegn yngri bróður eru til rannsóknar hjá yfirvöldum. Vorið 2016 óskaði barnaverndarnefnd Vestmannaeyja að lögregla tæki til rannsóknar langvarandi ætluð kynferðisbrot piltsins sem hafði greint sálfræðingi frá kynferðislegum hugsunum og löngunum sínum. Þá greindi hann frá kynferðislegum athöfnum með yngri bróður sínum. Í þriðju skýrslutöku hjá lögreglu í september í fyrra greindi hann frá kynlífi þeirra sem hann hefði oftast átt upptökin að en þó með samþykki þeirra beggja. Í þeim tilfellum sem bróðirinn hefði neitað hefði hann suðað í honum til að fá sínu fram.Metinn sakhæfur Drengirnir hafa síðan sótt sálfræðimeðferð, sá yngri í barnahúsi en eldri svokölluð SÓK meðferðarviðtöl hjá Barnaverndarstofu en um er að ræða meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni sem sýnt hafa óæskilega kynferðislega hegðun. Eldri bróðirinn er metinn sakhæfur af geðlækni og hafi enga alvarlega geðsjúkdóma. Hann sé þó haldinn barnagirnd og hafi alvarlegar kynferðislegar hugsanir. Rannsókn málsins hjá lögreglu er lokið og er það nú á borði héraðssaksóknara til ákvörðunar um hvort gefin verði út ákæra í málinu. Lögreglustjóri byggði ákvörðun sína um nálgunarbann meðal annars á þeim rökstudda grun sem pilturinn liggur undir og þeirri staðreynd að bræðurnir hafi verið í samskiptum í sumar. Engar upplýsingar væru um það hvort pilturinn væri enn hjá sálfræðingi en hann flutti af landi brott tímabundið.Meðferð gengur velÍ niðurstöðu Hæstaréttar kemur fram að ekkert benti til þess að eldri bróðirinn hefði brotið gegn þeim yngri síðan í apríl í fyrra. Þá voru foreldrarnir afar ósáttir um birtingu lögreglustjóra á nálgunarbanninu í júlí. Kváðu þau að verið væri að vinna í málinu og gengi það vel. Pilturinn mun vera á leiðinni í annan landshluta í ágúst og dvöl hans í Vestmannaeyjum í sumar slitrótt. Verjandi piltsins lagði fram staðfestingu á sálfræðiviðtölum sem pilturinn fór í 29. júlí og svo um fjörutíu tíma á tímabilinu mars til desember 2016. Síðan hafi hann verið í eftirfylgd hjá sálfræðingnum og ekkert bendi til þess að hann hafi sýnt af sér óviðeigandi hegðun síðan síðasta vor. Sex Skype-viðtöl hafi verið á tímabilinu janúar til júní og pilturinn farið í viðtal við komu til landsins í júní. Sömuleiðis var lögð fram staðfesting um skólavist piltsins í öðrum landshluta frá og með ágúst þar sem móðirin mun búa á sama svæði. Hæstiréttur felldi ákvörðunina úr gildi og vísaði til þess að nálgunarbann skuli aðeins beitt þegar ekki þyki sennilegt að friðhelgi verði vernduð með öðrum eða vægari hætti. Ekki eigi að fara strangar í sakirnar en nauðsyn beri til. Var sérstaklega litið til þess að ekkert benti til brots gegn brotaþola frá því í apríl í fyrra, árangur af meðferð hefði verið jákvæður og pilturinn að flytja frá Vestmannaeyjum. Ekkert liggi fyrir um að hann sé væntanlegur þangað. Miðað við það sé ekki þörf á nálgunarbanni að mati Hæstarétts þar sem ekki hafi verið sýnt fram á að vægari úrræði gætu ekki dugað.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira