Matvælafyrirtæki kært fyrir að falsa niðurstöður á vatnssýni Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. ágúst 2017 12:05 Vatnssýnin eru send á rannsóknarstofu til greiningar en niðurstöðurnar eru síðan skoðaðar af eftirlitsmönnum. Vísir/Getty
Matvælastofnun hefur kært matvælafyrirtæki til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, en fyrirtækið er staðsett þar. Stofnunin hefur fyrir rökstuddan grun um að umrætt fyrirtæki hafi falsað niðurstöður greininga á vatnssýni og reynt með því að „blekkja Matvælastofnun sem opinberan eftirlitsaðila.“ Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Matvælastofnun. Í tilkynningunni segir að matvælafyrirtæki á borð við það sem hefur verið kært taki sjálf vatnssýni a.m.k. einu sinni á ári. Sýnin eru send á rannsóknarstofu til greiningar en niðurstöðurnar eru síðan skoðaðar af eftirlitsmönnum. Starfsmenn Matvælastofnunar heimsækja þessi fyrirtæki tvisvar til þrisvar á ári. Stofnunin segir vatnssýni umrædds fyrirtæki ekki hafa staðist kröfur reglugerðar. „Málavextir eru þeir að í janúar 2017 fékk fyrirtækið afhentar niðurstöður greininga rannsóknarstofu á vatnssýni sem það hafði sjálft tekið til skoðunar á vatnsgæðum. Niðurstöðurnar sýndu að vatnssýnið stæðist ekki kröfur samkvæmt reglugerð með tilliti til örverutalningar,“ segir í tilkynningu Matvælastofnunar.Afhenti falsaðar niðurstöðurEftirlitsmaður Matvælastofnunar mætti í fyrirtækið í byrjun júlí. Hann fékk þar afhentar niðurstöður frá viðurkenndri rannsóknarstofu en skjalið var á bréfsefni rannsóknarstofunnar og undirritað af starfsmanni hennar. „Eftirlitsmaður Matvælastofnunar mætti í fyrirtækið 4. júlí síðastliðinn. og fór þá m.a. fram á að fá til skoðunar nýjustu niðurstöður greininga á vatnssýni. Forsvarsmaður fyrirtækisins sagðist ekki hafa þær handbærar, en sendi stofnuninni síðar sama dag skjal dagsett 12. júní 2017, með niðurstöðum greininga á vatnssýni frá viðurkenndri rannsóknastofu. Þar kom fram að vatnssýni sem fyrirtækið hefði afhent til greiningar uppfyllti kröfur reglugerðar um neysluvatn. Skjalið var á bréfsefni rannsóknastofunnar og undirritað af starfsmanni hennar.“ Matvælastofnun segir að skjalið hafi vakið grunsemdir hjá eftirlitsmanni stofnunarinnar. Við eftirgrannslan staðfesti rannsóknarstofan, auk forsvarsmanni fyrirtækisins sem kært er til lögreglu, að skjalið væri ekki gefið út af henni. „Grunsemdir vöknuðu hjá eftirlitsmanni Matvælastofnunar um gildi skjalsins og hefur rannsóknastofan staðfest að það er ekki gefið út af henni. Forsvarsmaður fyrirtækisins hefur einnig játað að svo er ekki. Matvælastofnun álítur málið alvarlegt og ákvað að kæra það til lögreglu, þar sem hér er að mati stofnunarinnar um að ræða fullframið brot, en skjalafals er brot á almennum hegningarlögum.“Annað sýni stóðst viðmiðÞá segir í tilkynningu Matvælastofnunar að ætla megi að vatnssýnið hafi mengast af sýnatökubúnaði. Annað sýni, sem stofnunin tók einhverju síðar, reyndist standast örverufræðileg viðmið. „Eftir viðræður við forráðamann fyrirtækisins má ætla að vatnssýni sem hann tók í byrjun ársins hafi mengast af sýnatökubúnaði, sem ekki var ætlaður til þeirra nota. Matvælastofnun hefur nú tekið vatnssýni hjá hlutaðeigandi fyrirtæki og reyndist það standast örverufræðileg viðmið um gæði neysluvatns. Stofnunin vill beina því til forráðamanna matvælafyrirtækja að bregðast strax við ef vatnssýni standast ekki kröfur og grípa þegar til viðeigandi ráðstafana til að tryggja öryggi og gæði matvæla.“
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Sjá meira