Aðgerðin telst minniháttar og tekur yfirleitt um 30 mínútur. Skorið er í vöðva inn í kinninni og spékoppur búinn til. Aðgerðin er vinsæl meðal ungs fólks því hún tekur lítinn tíma, það er engin svæfing og nánast ekkert vesen. Fyrstu mánuðina eftir aðgerðina eru spékopparnir hins vegar nánast alltaf sýnilegir, en svo hverfa þeir og koma fram þegar manneskjan brosir.
Fyrir áhugasama kostar aðgerðin í kringum 85.000-210.000 krónur. Hafa skal í huga að ef eitthvað mistekst í aðgerðinni er erfitt að laga það, og getur orðið eftir varanlegt ör í kinninni.
Erum við ekki bara öll falleg eins og við erum? Með eða án spékoppa.

