Helgi Hrafn furðar sig á gráu flóttamannagríni Vakurs Jakob Bjarnar skrifar 10. ágúst 2017 11:34 Helgi Hrafn segir erfitt að átta sig á því hvenær öfgafólk er að grínast. Valdimar Jóhannesson og hans fólk hjá Vakri telur að um einskonar svikamyllu sé að ræða þegar kostnaðurinn vegna hælisleitenda er annars vegar.
Samtökin Vakur – samtök um evrópska menningu, sem þekktust eru fyrir að hafa staðið fyrir komu Robert Spencers hingað til lands, birtu á Facebooksíðu sinni frétt, eða fréttalíki þar sem fjallað er um tímamót í flóttamannahjálp Rauða krossins. „Fyrstu flóttamennirnir frá Kekistan eru komnir til Vestmannaeyja,“ segir í „fréttinni“ og er þar vitnað í Arndísi A.K. Gunnarsdóttur lögfræðing hjá Rauða krossinum. „Þetta eru nefnilega alvöru flóttamenn, þeir koma á gúmmíbátum yfir hafið, eftir miklar þrautir, en fljúga ekki til landsins með WOW Air eða Flugleiðum eins og hælisleitendur sem flýja nágrannalöndin okkar,“ segir Arndís, samkvæmt „fréttinni“.Myndin sem fylgir byggir á frosknum Pepe sem á að hafa tiltekna táknræna merkingu, sem farið er í saumana á hér. Einnig er vitnað í Helga Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmann, sem nú er sagður starfa sem túlkur í téðri frétt. „ég er búinn að kynna mér þetta mál helvíti mikið,“ er Helgi Hrafn látinn segja í fréttinni.Kostnaðurinn vegna hælisleitendaEf rýnt er í inntakið vísar það væntanlega til kostnaðar sem til er kominn vegna vegna hælisleitenda; hann fer fyrir brjóstið á þeim hjá samtökunum, en formaður þeirra er Valdimar Jóhannesson. Í athugasemd sem fylgir myndinni segir að í fréttatilkynningu frá Eurostat Evrópusambandsins ... „17. mars s.l. sóttu alls 1.105 manns um ,,alþjóðlega vernd" á Íslandi árið 2016. Þar af voru 460 ,,hælisleitendur" frá Makedóníu (42%), 230 (21%) frá Albaníu -- öryggum löndum sem eru vinsælir ferðamannastaðir í Suðuraustur-Evrópu -- og 75 (7%) frá Írak. 63% hælisleitenda eru því frá Makedóníu og Albaníu. Mest ungir karlmenn. Ásmundur Friðriksson þingmaður segist hafa heyrt að kostnaður vegna móttöku hælisleitenda á Íslandi verði í ár 3-6 milljarðar króna. Það sé á við ein til tvö Dýrafjarðargöng. Í fyrra var það um 2 milljarða. Þetta hefur náttúrlega ekkert með „flóttamannahjálp“ að gera.“Erfitt að átta sig á því hvernær öfgamenn eru að grínast Vísir spurði Helga Hrafn hvað honum þætti um það að vitnað væri í hann með þessum hætti? „Það er ákveðið einkenni öfga að erfitt er að átta sig á því hvenær fólk er að grínast og hvenær ekki. Þegar málflutningurinn er orðinn svo mikil steypa að maður beinlínis er ekki viss um að viðkomandi raunverulega trúir því eða ekki, sem hann er að segja. Þessi frétt er greinilega vitleysa, en miðað við málflutninginn hjá þeim hingað til velti ég því fyrir mér hversu stór hluti þeirra sem les þetta telji vera alvöru á ferð,“ segir Helgi Hrafn.Hvað er fyndið í þessu?Þingmaðurinn fyrrverandi kippir sér ekki upp við þetta, þó honum séu lögð orð í munn, en telur þetta þó allrar athygli vert, til að mynda það að hann kemur ekki auga á fyndnina sem upp er lagt með. „Síðan velti ég fyrir mér, fólkið sem sér að þetta er vitleysa, hvað finnst því fyndið við þetta? Ég skil ekki hvers vegna einver sem er á þeirri skoðun sem Vakur boðar ætti að hlæja að þessari frétt? Hvað er fyndið? Að þetta séu sjö milljarðar? Að þau komi frá Svíþjóð? Að þau komi á gúmmíbát yfir hafið? Eða leggja mér orð í munn, að þetta verði allt í lagi? Hver er satíran“ spyr Helgi Hrafn og veltir fyrir sér hinum ýmsu möguleikum en sér ekki grínið sama hvað hann reynir.Enginn áhugi á staðreyndumHelgi Hrafn fær ekki betur séð en að þetta hafi þann eina tilgang að búa til ranghugmyndir um málaflokkinn, brengla umræðuna. „Ég hef aðeins skoðað málflutning þeirra hjá þessum samtökum og þar virðist vera lítill áhugi á að fjalla um hælisleitendamálin út frá raunveruleikanum. Þegar þeim er bent á staðreyndir sem eru öndverðar málflutningi þeirra, þá ýmist hunsa þau það eða þræta fyrir það, einhverju sem hægt er að fletta þessu upp. Það er eins og það sé enginn áhugi á að málflutningurinn sé í tengslum við raunveruleikann heldur snýst hann um að tjá einhverjar tilfinningar og berjast fyrir einhverjum málstað óháð því að hann sé réttur.“Fram sett til að brengla umræðunaHelgi Hrafn bendir á að það sé svo að enginn sé ánægður með stöðuna í þessum málaflokki. Enda er flóttamannakrísa á heimsvísu. Auðvitað á að hlusta á áhyggjur þess fólks sem óttast þessa miklu fólksflutninga. „En það ber bara svo mikið á því og sérstaklega hjá samtökum eins og þessum, að áhyggjurnar og gagnrýnin hjá þessum aðilum er ekki byggð á raunveruleika eða sannleika. Skeytingarleysi gagnvart því hvað er satt er ráðandi og þá verða samtöl ekki uppbyggileg.“ Helgi Hrafn segir að því miður þá virðist þetta sett fram gagngert til að valda misskilningi, fyndin fari milli skips og bryggju eins og oft vill verða þegar í hlut á fólk sem er einsýnt.
Mest lesið Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Sjá meira